Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Side 15
Tillaga um breytingu á lögum til að koma í veg fyrir að afla sé hent
Ekki á að koma fólki í þá
aðstöðu að verða að brjóta lög
Tillaga til þingsályktunar um
endurskoðun á ákvæðum laga
um umgengni um nytjastofna
sjávar hefur verið lögð fram á
Alþingi af Pétri Blöndal. Sér-
staklega skal skoðað ákvæði
3. greinar með það I huga
hvort ekki sé rétt að skipstjóri
geti ákveðið við löndun hve
mikinn hluta afla skips skuli
telja til kvóta þess og að allur
annar afli skiþsins teljist eign
rannsóknarstofnana sjávarút-
vegsins. Útgerðin sjái þá um
að selja afla rannsóknarstofn-
ana og greiða þeim söluverð-
verðmætið að frádregnu gjaldi
vegna kostnaðar við flutning í
land, geymslu, löndun og sölu-
meðferð aflans. í greinargerð
með tillögunni kemur fram að
samkvæmt núgildandi ákvæð-
um laga sé ekki unnt að skylda
sjómenn til að koma með allan
afla að landi nema tekið sé á
því hvað um þann afla verður.
Flutningsmaður tillögunnar tel-
ur að nái hún fram að ganga
verði minni líkur á að afla sé
hent. „Flestum finnst slæmt að
henda góðum fiski sem slæð-
ist eðlilega með I mismiklu
magni. Sá fiskur sem núna er
veiddur og hent mun skila sér í
land sem nú er beinlínis refsi-
vert að koma með hann að
landi.
Ekki á að koma fólki I þá að-
stöðu að verða að brjóta lög,“
segir í greinargerðinni. Þar
segir ennfremur: „Fernt mun
hvetja sjómenn til þess að
koma með utankvótaafla að
landi. í fyrsta lagi fara þeir með
því að lögum, í öðru lagi fá þeir
nokkurt verð fyrir aflann, í þrið-
ja lagi þykir flestum leitt að
henda verðmætum og að síð-
ustu rennur verðmæti aflans til
rannsókna fyrir sjávarútveginn.
MAÐUR.
Þessi aðferð hefur bæði kosti
og galla. Búast má við að
miklu meiri afli berist að landi.
Bæði mun allur sá afli sem nú
er hent berast að landi, sem
að sjálfsögðu er mikill kostur
því að þessi fiskur er deyddur
hvort sem er, en jafnframt
munu útgerðir ekki forðast,
eins og núna, þau mið sem
mest gefa af bönnuðum með-
alafla, t.d. af þorski. Þannig
munu utankvótaveiðar aukast
eitthvað. Að sjálfsögðu er það
galli en á móti kemur að allur
þessi afli kemur þjóðfélaginu í
heild til góða. Auk þess verður
vitað með meiri vissu hve mik-
ið er veitt en það liggur ekki
fyrir I dag. Verðmæti utan-
kvótaaflans mun auk þess
verða lyftistöng fyrir sjávar-
rannsóknir og létta byrðum af
ríkissjóði.
Einnig er rétt að skoða
ákvæði 9. gr. um undirmáls-
fisk. Ákvæði gildandi laga um
að undirmálsfiskur teljist að-
eins að hluta með I aflamarki
verður óþarft ef framangreind
atriði verða tekin til skoðunar
og samþykkt." ■
Útbúum
lyfjakistur
fyrir skip og báta.
Eigum ávallt tilbúin
lyfjaskrín fyrirvinnustaði,
bifreiðir og heimili.
INGÓLFS
APÖTEK
sími 568 9970
Beinar línur fyrir lækna 568 9935
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
15