Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Side 24
i Tölfra heims flotan 1996 Lloyd’s Register hefur ný- lega gefið út tölfræðilegar upp lýsingar um heimsflotann fyrir áriö 1996. Ná upplýsingarnar yfir skip sem eru 100 tonn að stærð og stærri. Varð aukning á flotanum milli ára upp á 17.2 milljón tonn og er hann nú 507.9 miiljón tonn að stærð en það eru 84.264 skip sem fylla þessa tölu. 45.097 voru flutn- ingaskip samtals 482 milljón tonn eða 740 milljón burð- Heimur batn- andi fer Fyrsta beina sigling skips milli Kína og Tævan i 48 ár varð að veruleika um miðj- an apríl s.l. þegar Sheng Da kom til Kaohsiung i Tævan frá Kína með farm frá þriðja ríki. Skipið sem skráð er á Grenadie eyjum var þó látið sigla til hafnar- innar með fána Tævan að húni en ekki þann kin- verska. Hafa nú verið teknar upp reglubundnar siglingar vikulega milli land- anna tveggja. Virðist sem einhver sátt sé að verða í málum Tævan og Kína. ■ TÆPLEGA 26 MILLJÓN TONN BÆTTUST VIÐ HEIMSFLOTANN. artonn. Meðalaldur heimsflot- ans var 19 ár og ef flutninga- skipin eru tekin sérstaklega þá var meðalaldur þeirra 18 ár. Stórflutninga og gámaskip voru flest undir 15 ára aldri en flutninga og olíuskip voru eldri. Flest skipa sem smíðuð voru á árinu voru smíðuð í Japan og Suður Kóreu eða 68% en samtals voru 25,9 milljón tonna smíðuð. 778 skip voru strikuð út á árinu eða 9,3 millj- ónir tonna og voru þau annað hvort rifin eða fórust. Var meðalaldur þessara skipa 26 ár. 36% skipanna sem fórust voru flutningaskip og 32% skipanna sem voru rifin voru olíuflutningaskip. Stærsti floti heims er skráður í Panama eða 16% samtals 6.105 skip og 82,1 milljón tonn. Meðal- aldur Panamaskipanna var 18 ár Líbería var í öðru sæti með 1.684 skip og 60 milljón tonn þar sem meðalaldurinn var 12 ár. Þá komu Grikkir með 1.743 ships og 27,5 milljón tonn en þar var meðalaldurinn aftur á móti mun hærri eða 24 ár. Japanski flotinn var yngsti floti heims þar sem meðalald- urinn var einungis 9 ár en Bandaríkjamenn með þann elsta þar sem 28 ár var meðal- aldurinn. Hér á landi er meðal- aldur allra íslenskra skipa 15,3 ár. ■ Ekki miklar kröfur Engin sex yfirmanna á Sýr- lenska flutningaskipinu Samer N sem er tæplega 4000 tonn að stærð höfðu lögleg skilríki þegar skipið var skoðað í hafnarríkisskoðun í Rotterdam um miðjan apríl. Skipið var að koma frá Fredrikshavn í Dan- mörku þegar*skoðun fór fram á því. Fimm skipverjanna höfðu skírteini frá sjómanna- skóla í Líbanon sem ekki reyndist hafa verið enn settur á laggirnar. Skipstjórinn hafði síðan sett einn háseta skipsins sem annan stýrimann þótt hann hafði enga þekkingu á siglingafræðinni. Skipið var kyrrsett meðan beðið var eftir nýjum skipverjum með réttindi til að sigla skipinu áfram en hver þeirra sex skipverja fengu sekt sem nam 1300 dollurum á mann. ■ Aflmesta vél heims Vélin í nýja gámaskipið verður stærsta vél sem smíð- uð hefur verið en nýjasta stærðarmetið í díeselvélum var sett í síðasta mánuði þegar 60,398 kW/82,170 hestöfl var sett niður i nýtt 5750 TEU gámaskip. Vélin sem er að Sulzer gerð er 11 strokka og framleiðir vélin 5,490 kW á hvern þeirra sem er 960 millimetrar. ■ 24 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.