Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Page 32
Á tímabili flugum við GRO talsvert í
vegaeftirliti fyrir lögregluna en því miður
hefur ekki orðið nein þróun í því að nota
þyrlu við löggæslustörf hér á landi,
ólíkt því sem er annars staðar.
Þessi þyrla er sáralítið notuð núna.
TOGHLERAR
„FYRIR ALLAR TOGVEIÐAR"
J. HINRIKSSON H.F.
SÚÐARVOGI 4 SÍMAR 588 6677 / 568 0775
104 REYKJAVÍK MYNDSENDIR 568 9007
FRAMLEIÐENDUR TOGBÚNAÐAR i ÁRATUGI
greina. Vitaskuld höfðum við fylgst með því
sem var að gerast í þyrluheiminum og hverjir
væru að fljúga hvaða tegundum. Ég var fyrir
löngu búinn að sjá að Super Puma var iang-
besti kosturinn fyrir okkur. En það eru ýms-
ir hagsmunir sem stangast á þegar kaupa á
verkfæri sem kostar milljarð. Eins og allir vita
var svo ráðist í kaup á þyrlu af gerðinni Super
Puma, sem var skráð sem TF-LIF. Það er
með stærstu stundum lífs míns þegar við
lentum í Reykjavík eftir að hafa flogið henni
til landsins.“
LÍF ER EINS OG TRUKKUR
Eru SIF og LIF mjög ólíkar sem bj^rg-
unarþyrlur?
„SIF er svona eins og kappakstursbíll,
hraðfleyg og lipur. LIF er hins vegar eins og
trukkur sem sullast áfram í gegnum nánast
hvaða veður sem er og er óstöðvandi þegar
hún er komin á stað. Það er þó algjör nauð-
syn að hafa báðar þyrlurnar í rekstri. Við viss-
um fyrirfram að Puman væri mun þyngri í
viðhaldi. Á SIF er skrúfublöðunun til dæmis
kippt af með handafli en á LIF þarf að nota
krana til verksins. Það var ljóst að LIF yrði
mun lengur frá á hverju ári vegna eðlilegra
skoðana og viðhalds. Stór hluti verkefna sem
við fáum ræður SIF ágætlega við og sum þeir-
ra henta þeirri vél raunar betur en LIF. Og ef
það er bæði betra og ódýrara að nota SIF í
slíkum tilfellum er engin spurning um að það
er hagkvæmt að halda henni áfram. En það er
ótrúlegt hvað SIF hefur verið lítið frá vegna
viðhalds. Hún er tekin einu sinni á ári í 500
flugtíma skoðun sem tekur ekki nema eina
viku. Á árunum 1985-95 fór SIF í 722
sjúkra-, björgunar- og leitarflug og í þeim
ferðum var fluttur 581 einstaklingur. LIF
verður hins vegar frá sex til sjö vikur á ári þar
sem öll vinna við skoðun á henni er yfirgrips-
meiri og tímafrekari. Við stýrum þessu hins
vegar á skynsamlegan hátt og leggjum höfuð-
áherslu á að LIF sé ekkt í skoðun yfir verstu
vetrarmánuðina, svona frá október og fram í
mars. Þá er mjög áríðandi að hún sé til taks.“
KEMHYDRO - salan
Snorrabraut 87 • 105 Reykjavík
Sími: 551 2521 • Fax: 551 2075
COOL TREAT 237
Fyrir ferskvatnstanka
Sjómannablaðið Víkingur