Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Qupperneq 51
efnum síðan, svo mér sé kunn-
ugt,
Nú eru mikil áform uppi um
stórfellda atvinnuppbyggingu á
íslandi. Hafin er bygging álvers í
Hvalfirði, stækkun járnblendis-
verksmiðjunnar er í undirbún-
ingi og stóraukning er á veiðum
síldar og loðnu og fleira mætti
nefna. Þessum framkvæmdum
fylgja svo miklar virkjunarfram-
kvæmdir. Allir flutningar sem
þessu fylgja, til og frá landinu,
verða boðnar út á alþjóðlegum
markaði og sá sem best býður
mun fá verkefnin. Verði ekkert
aðgert eru engar líkur á að ís-
lenskir farmenn fái þau störf sem
þarna skapast, né endurheimti
þau störf sem þegar hafa tapast í
hendur útlendra farmanna. Hitt
er svo líklegt að íslensku kaup-
skipaútgerðirnar muni bjóða í
þessa flutninga með það í huga
að sinna þeim með útlendum
leiguskipum með útlendum far-
mönnum.
GOÐAFOSS FRÁ HAMBORG. ÍSLENSKT NAFN, EN HEIMILIÐ ER EKKI HÉR Á LANDI.
Forstjórarnir ERU LÉTANDI
A undanförnum árum hefir aðsókn að
námi til æðstu starfa skipstjórnarmanna á
kaupskipum og varðskipum farið síminnk-
andi. Nú er svo komið að engin kennsla fer
fram á 3. stigi Stýrimannaskólans í Reykjavík
á því skólaári sem nú er að ljúka. Hér er um
mjög alvarlegan hlut að ræða, sem verður að
bæta úr ef halda á úti íslenskum kaupskipag-
flota til frambúðar. Ef svo heldur sem horfir
mun að fáum árum liðnum verða skortur á
mönnum með menntun til æðstu starfa skip-
tækni og stórtækum vinnuvélum er beitt til við lestun og losun skipanna.
stjórnarmanna. Því miður hefir nokkuð bor-
ið á þeim málflutningi að ekki sé von að ung-
ir menn sækji í þetta nám þar sem einungis
fjögur skip, eða svo, sigli undir íslenskum
fána. Þeir sem setja málið fram á þennan hátt
virðist skorta yfirsýn í þessum efnum þar sem
þeir líta framhjá þeirri staðreynd að auk þess-
ara fjögurra skipa þarf 3. stigs
nám til að öðlast fyllstu réttindi
til æðstu skipstjórnarstarfa á
varðskipum, nokkrum ferjum
og nokkrum kaupskipum sem
gerð eru út af íslenskum útgerð-
um, sem sigla undir erlendum
fánum, því miður, en eru enn
mönnuð íslenskum áhöfnum.
Því miður verður innlegg for-
stjóranna tveggja í Morgun-
blaðsumfjölluninni, sem að
framan er getið, varla til þess að
hvetja unga menn til að leggja
fyrir sig langt nám í skipstjórnar-
fræðum eða til annarra starfa á
íslenskum kaupskipum.
Ég óska sjómönnum og fjöl-
skyldum þeirra gleðilegs sjó-
mannadags. ■
Guðlaugur Gtslason,
framkvœmdœstjóri
Stýrimannafélags íslands.
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
51