Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Qupperneq 55
Benedikt Valsson:
Nýir kjarasamn-
ingar farmannafé
laga innan FFSÍ
Samninganefnd farmanna innan FFSI
undirritaði nýjan kjarasamning við Vinnu-
veitendasamband íslands og Vinnumála-
sambandið fyrir hönd Skipstjórafélags ls-
lands, Stýrimannafélags Islands. Félags ís-
lenskra loftskeytamanna, Félag bryta og Fé-
lags matreiðslumanna þann 14. maí síðast-
liðinn. Félagsmenn framangreindra félaga
voru búnir að samþykkja í atkvæðagreiðslu
að fara í verkfall hinn 20. maí, en var frestað
við undirritun samninga til 5. ágúst næst-
komandi. Kjarasamningurinn verður borinn
undir viðkomandi farmenn í atkvæða-
greiðslu og niðurstaða hennar mun liggja
fýrir 16. júlí næstkomandi.
Kjarasamningurinn kveður á um að allir
síðast gildandi kjarasamningar aðila fram-
lengjast til 1. nóvember árið 2000. Með öðr-
um orðum er gildistími samningsins um
þrjú og hálft ár. í kjarasamningnum er
gert ráð fýrir að kauptaxtar hækki á gildis-
tímanum um 16% - 32%, en þessi mis-
munur skýrist aðallega af niðurfellingu
starfsaldursþrepa nema þess hæsta. Einnig
var gerð sú breyting á kauptaxtakerfmu að
sjóálag og framreiðsluálag til stýrimanna,
loftskeytamanna og matreiðslumanna er
fellt í áföngum inn í grunnlaun viðkom-
andi starfsstétta.
Þetta leiðir til þess t.d. að tímakaup
stýrimanna í yfirvinnu hækkar á bilinu
29% - 47% á samningstímanum. Mis-
munurinn skýrist af sömu ástæðu sem
greint er frá hér að framan. Skipstjórar og
brytar fá síðan sérstaka hækkun launa til
samræmis við þessa kerfisbreytingu á
kauptaxta stýrimanna. Þá var samið um
árlegar orlofsuppbætur, um níu þúsund
krónur, og árlegar desemberuppbætur,
sem eru frá 25 til 28 þúsund krónur á
samningstímabilinu.
Önnur mikilvæg breyting á kjörum yfir-
manna á kaupskipum er hækkun bóta vegna
vinnuslysa. Dánarbætur slysatryggingar
hækka í 3.000.000 krónur eða um 55%.
Þessi breyting tekur gildi 1. júní næstkom-
andi. Þá var samið um að kaupskipaútgerð-
ir mundu bjóða farmönnum hækkun ör-
orkubóta slysatryggingar með ákveðnu
greiðslufyrirkomulagi. En gert er ráð fyrir
því að útgerðirnar muni greiða alfarið þenn-
an kostnað af hækkun slysatrygginga frá og
með næstu kjarasamningum. Þessi hækkun
örorkubóta er um 25% miðað við gildandi
ákvæði kjarasamninga sem leiðir til þess að
örorkubætur slysatrygginga miðað við 100%
varanlega örorku hækka um 2,2 milljónir
króna.
Mikilvægt atriði kjarasamninganna er
heimild til að semja í einstökum fyrirtækjum
um aðlögun ákvæða kjarasamningsins að
þörfum og hagsmunum farmanna og kaup-
skipaútgerða. Stéttarfélög farmanna munu
hafa hönd í bagga við gerð slíkra samninga.
Auk framangreindra atriða voru gerðar
ýmsar bókanir til hagsbóta farmönnum.
Meðal þessara bókanna er uppsagnarákvæði
komi til þess að sjómannaafslátturinn verði
lagður niður.
Flest bendir til þess að framundan er langt
tímabil stöðugleika í kjaramálum launþega.
Eflaust eru ekki allir fullkomlega sáttir með
það sem þeir bera úr bítum úr þessum kjara-
samningum. En fullyrða má að flestir geta
vel við unað með niðurstöðu samningsins.
Þrátt fýrir þessa niðurstöðu á sviði kjaramála
býður farmanna mikilvægt baráttumál, en
það er efling atvinnuöryggis og fjölgun star-
fa í farmennsku. ■
Útgeröarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viðgeröir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.___________
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
55