Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Page 70
Ví
Þrm&tH&ió nr
m
IKINGUR
Hampiðjan:
Framsæknir
á útflutningsmarkaði
Fyrirtækið Hampiðjan hefur
vakið athygli fyrir framsækinn
rekstur og þá sérstaklega hvað
varðar útflutningsmarkað.
Hampiðjan varð þess heiðurs
aðnjótandi að fá Útflutnings-
verðlaun forseta íslands á síð-
asta ári. Guðmundur Gunnars-
son er sölustjóri Hampiðjunn-
ar.
„Útflutningur hjá Hampiðj-
unni hefur tekið miklum breyt-
ingum undanfarin ár. Fyrir
1990 var útflutningurinn mest í
sölu á tilbúnum netastykkjum
sem við seldum til ýmissa
staða, aðallega í Evrópu og
eitthvað til Bandaríkjanna. Frá
1990 og fram á daginn í dag
þá hefur þetta breyst yfir í það
að við erum að selja tilbúin
veiðarfæri, aðallega flottroll og
vörpur. Þau hafa bæði verið til
úthafsveiða suður af íslandi
(þar sem við höfum verið frum-
kvöðlar að veiðitækninni
ásamt með íslenskum skip-
stjórum) og til veiða víða um
heim,“ sagði Guðmundur.
Flestar aðrar heimsálfur
„Hampiðjan er komin með
troll í flestallar heimsálfur jarð-
arkringlunnar. Við erum búnir
að vera í útflutningi frá árinu
1970, en þá hófst þetta fyrst
fyrir alvöru til Færeyja. Síðan
þá höfum við smátt og smátt
verið að auka framleiðsluna til
sölu út fyrir landsteinana. Hlut-
fall útflutnings í heildarveltunni
var um 20-25% framanaf, en
fyrir tveimur árum rauk það
upp í 36%.
Jafnhliða sölu okkar veiðar-
færa, erum við að fá skip-
stjórnarmenn með okkur í
markaðsferðir, þeir hafa farið
70
Sjómannablaðið Víkingur