Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Side 71

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Side 71
út með skipum og leiðbeint urn notkun veiðarfæranna. Við erum því markvisst að selja ís- lenska skipstjórnar- og veiðar- terakunnáttu. Ég held að okk- ar tækni sé með þeim fremstu í heiminum. Við höfum meðal annars selt veiðarfæri til Rúss- lands, Japans, Nýja-Sjálands og Ástralíu. Ég var á fundi með jap- önskum útgerðarmönnum í haust og þeir höfðu kynnt sér úthafskarfaveiðar okkar. For- maður þeirra sagði mér að við værum komnir töluvert framúr Japönunum í veiðitækni. Það er ekki lítið hrós frá einni mestu fiskveiðiþjóð heims. Samvinna margra Útflutningsverðlaunin hafa heilmikla þýðingu fyrir okkur, skki einungis fyrir Hampiðjuna sjálfa, heldur einnig fyrir okkar viðskiptavini sem hafa verslað við okkur og hafa staðið með okkur í þróun veiðarfæranna. Það er ekki síður þeim að þakka en okkur. Ég held að enn séu mikil markaðstækifæri fyrir hendi úti í heimi fyrir Hampiðjuna og af töluvert miklu að taka. Það Þarf bara að leita að tækifær- unum og vera stöðugt í því að endurnýja og koma með nýj- ungar. Þetta er að mörgu leyti eins og í fótboltanum, ef menn eru ekki sífellt vakandi og í 9óðri þjálfun, þá falla menn bara niður um deild. Samt á ég ekki von á því að framleiðsla okkar verði að meirihluta til út- flutnings. Okkar grunnur er heima- markaðurinn og á honum byggjum við og miðum okkar reynslu. Við þurfum síðan að aðhæfa veiðarfærin sem fram- leidd eru fyrir erlendan mark- að, þeim aðstæðum sem þar hkja. Við þurtum að passa okkur á því að yfirfæra ekki okkar aðstæður á önnur svæði, heldur aðlaga okkur að Þeim,“ sagði Guðmundur. ■ VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI ÚTVEGSSVIÐ Á DALVlK Pósthólf 41 - Stmi: 466 1083 - 620 Oalvík - Bréfasími: 466 3289 VMA - Útvegssvið á Dalvík veturinn 1997-1998 SKIPST JÓRNARNÁM Kennt er til skipstjórnarprófs 1. og 2. stigs FISKIÐNAÐARNAM Kennt er til fiskiðnaðarprófs ALMENNT FRAMHALDSNÁM 1. bekkur framhaldsskóla SJÁVARÚTVEGSNÁM 4 anna undirbúningsnám til skipstjórnarnáms Góö heimavist á staönum. Innritvm er hafin. heitiö upplýsinga í símum 466 1083 ogfajc 466 3289 Kennslustjóri SjÖMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 71

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.