Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Blaðsíða 9
i. , Jrslit í i i
liosmynaakevpm
sjómanna
Ljósmyndakeppni Sjómannablaðsins Víkings var hrundið af
stað fyrr á þessu ári og voru undirtektir góðar. Alls bárust
blaðinu 65 ljósmyndir sem allar eiga það sameiginlegt að vera
teknar af sjómönnum um borð í íslenskum skipurn. Ljós-
myndakeppnin er liður i norrænni ljósmyndakeppni sjómanna
sem Víkingurinn hefur fyrir hönd íslenskra sjómanna fengið
aðgang að. Ákveðið var í byrjun að veita verðlaun fyrir þrjár
bestu myndirnar en auk þeirra þriggja fara 12 myndir til við-
bótar í norrænu keppnina sem fram fer í Osló í byrjun janúar
n.k. í dómnefnd Sjómannablaðsins Víkings eru Hilrnar Snorra-
son skólastjóri, sem jafnframt er formaður, Árni Bjarnason for-
seti FFSÍ, Jón Svavarsson ljósmyndari og Sæmundur Guðvins-
son ritsjóri Víkings. Það var erfitt verk fyrir dómnefndina að
velja úr hreint stórkostlegum ljósmyndum sem sönnuðu svo
ekki var um villst að miklir hæfileikar eru rneðal íslenskra sjó-
manna sem myndasmiða.
Niðurstaða dómnefndar var sú að fyrstu verðlaun hlýtur
mynd Þorgeirs Baldurssonar, þá háseti á Hörpu VE 25. Myndin
var tekin á síðustu vetrarvertíð og lýsir vel hverju þunglestuð
nótaskip geta lent í þegar misjöf eru veðrin.
Önnur verðlaun hlýtur mynd Hlyns Ársælssonar háseta á
Hóhnaborg SU. Það má nýta frístundirnar á ýmsan hátt um
borð og þá að nýta sér aðstæður hverju sinni.
Þriðju verðlaun hlýtur mynd Jóns Páls Ásgeirssonar stýri-
manns á varðskipinu Óðni. Er myndin tekin frá varðskipinu
sem statt var í Fljótavík að sækja flugvél sem hafði hlekkst á í
lendingu.
í fjórða sæti varð önnur mynd tekin af Þorgeiri Baldurs-
syni sern þá var háseti á Árbak EA. Má þar sjá skipverja af Ár- kessi myndjóns Páls Ásgeirssonar fékk 3. verðlaun í keppninni.
bak að æfa sig í notkun á léttbát skipsins og var þessi mynd
eina svarl/livíta mynd-
in sem í keppnina
barst.
í næsta tölublaði
verður greint frá verð-
launum sem veitt eru,
úrslitum norrænu
keppninnar kynntar og
þá jafnfram birtar fleiri
myndir af þeirn sem
bárust í keppnina og
komust í undanúrslit
norrænu keppninnar.
Sjómannablaðið
Víkingur þakka öllum
þeim sem þátt tóku í
keppninni fyrir fram-
lag þeirra og hvetur þá
sem og alla aðra sjó-
menn að halda áfram
að munda vélarnar og
taka þátt í keppninni
að ári Iiðnu.
I 4. sæti var valin mynd sem Þorgeir Baldursson tók.
Sjómannablaðið Víkingur - 9