Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Blaðsíða 41
Bókaútgáfan Hólar gefur út bókina Sjósókn og sjávarfang. Um er að rœða 1. bindi sögu sjávarútvegs á íslandi eftirjón Þ. Þór sagnfræðing. Undirtitill þessa bindis er árabáta- og skútuöld. Þar tíundar höfundur upphaf fiskveiða við ísland, fjallar um allar hliðar árabátaútgerðarinnar og dregur upp lifandi mynd af öld seglskipanna. í eftirfarandi bókarkafla er fjallað um veiðarfœri Rommsaltac: hrossakjöt Framar í þessu riti var stuttlega sagt frá veiðarfærum íslendinga á landnáms- °g þjóðveldisöld og vitnað til lýsingar Arngríms Brandssonar, ábóta á Þingeyr- um, á því, hvernig handfæri voru notuð hér á landi á miðöldum. Getur sú lýsing átt við um notkun handfæra allt fram á 20. öld. Handfærið var algengast veiðarfæra á íslandi á fyrri tíð og reyndar eina veiðar- færið, sem notað var í öllum landshlut- um allt það skeið, sem við nefnum ára- bátaöld. í sjávarbyggðum voru fá arnboð mönnum nauðsynlegri en færið. Færis- lausir fóru menn ekki á sjó, og væri færi ekki til, var oft skammt í bjargarleysið. Handfæri gálu verið ýmissar gerðar, en venjulegt handfæri samanstóð af fjórum meginhlutum, færislínunni, sökku, taumi og öngli, og á síðari tímum einnig af sigurnagla og ás. Ýmis nöfn eru i íslensku máli um þetta forna veiðitæki. í Guðmundarsögu bisk- ups er talað um djúpshöfn, og telur Lúð- vík Kristjánsson það elsta heiti á hand- færi, en önnur gömul heiti sömu merk- ingar eru úthald og umbúð. Yngri og al- gengari heiti eru handfæri, haldfæri, haldsnæri og snærishald. Efsti hluti færisins var sjálf línan, og gekk hún undir ýmsurn nöfnum. Á ein- okunartímabilinu á 17. og 18. öld var löngum talað um lóðlínu, en önnur heiti voru færi, snærisfæri, færishönk, færa- lina og dræsa. í heimild frá 16. öld er einnig talað unr skinn og ólarfæri, og ljóst, að þau hafa a.m.k. verið þekkt við Breiðafjörð, á Norðurlandi og Austfjörð- um. Loks voru veiðarfæri, sem notuð voru til hákarlaveiða og voru ávallt nefnd vaðir. Heimildir greina lítt frá efni og gerð handfæra hér á landi á miðöldum, en Lúðvík Kristjánsson lelur, að þau hafi þá ef til vill verið gerð úr skinni og tog- þræði og hugsanlega einnig úr taglhári og hör. Á 15. öld, ensku öldinni, er þó fyrir |orsk kemur að landi vafalaust óhætt að gera ráð fyrir því, að eitthvað hafi flust hingað til lands af enskum færum, og hafa þau trúlega verið úr hampi. Verslunarheimildir frá 16. og 17. öld geta um innflutning á færum frá Englandi og Danmörku, en þau þóttu misjöfn að gæðum. Dönsk færi þóttu miklu lakari en ensk og hollensk, og reyndu Islendingar að kaupa færi af út- lendum fiskimönnum, ef þeir gátu. Utn rniðbik 17. aldar var tekið að flytja hing- að til lands hamp lil færagerðar, og voru færi unnin úr honum allt fram á 19. öld. Lúðvík Kristjánsson lýsir færagerðinni svo: Áður en hingað lluttust rokkar, sem var ekki fyrr en um miðja 18. öld, voru einungis notaðar snældur. Hampurinn var fyrst tættur sundur og visk af honum látin hanga þannig að náð var til hennar jafnóðum og lippað var og snúið með snældunni. Pegar undið hafði verið í þrjá hnykla, var af þeim þrinnað á snældu, en stundum voru þræðirnir hafðir fjórir. Á hamprokkinn var jafnt spunnið sem þrinnað, en hann var dálítið stærri en venjulegur bandrokkur. Gögnin, sem notuð voru til þess að snúa þættina sam- an, aldrei færri en þrjá, stundum fjóra, voru nefnd: færisstóll, færagögn, fær- arokkur og hestar. Unnið var eins með þcim öllum, þó gerðir þeirra væru mis- munandi. Með þeim aðferðunt, sem hér var lýst, voru færi unnin við sjávarsíðuna, sums Sjómannablaðið Víkingur - 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.