Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 11
Alþingi Breyting á lögum um vinnutíma sjomanna AAlþingi hefur verið lagt fram frum- varp um breytingu á sjómannalögum er varða aldurslágmark skipverja og vinnu og hvíldartíma. Breytingin kemur til vegna innleiðingar tiltekinna EES- gerða. í frumvarpinu kemur rneðal annars fram eftirfarandi: Eigi má hafa yngri mann, karl eða konu, en 16 ára við vinnu á skipi nema um skólaskip eða æfingaskip sé að ræða. Samgönguráðherra getur setl reglur um hærra aldurslágmark skipverja við liltekin störf allt fram til 18 ára aldurs. Eigi má hafa yngri mann, karl eða konu, en 18 ára við vinnu á farþegask- ipum og flutn ingaskipum að nóttu til, þ.e. tímabil sem varir í a.rn.k. 9 samfell- dar klukkustundir, þar með talið tímabil- ið frá miðnætti til klukkan fimm að rnorgni. Þetta á þó ekki við ef um er að ræða menntun og þjálfun ungra sjóman- na 16-18 ára að því er varðar fyrir- framákveðin verkefni og áætlanir. Vinnu- og hvíldartími skipverja á fiskiskipum Sérhver skipverji skal eiga rétt á nægi- legri hvíld og skal hámarksfjöldi vinnus- tunda á viku takmarkaður við 48 klukkustundir að meðaltali reiknað yfir viðmiðunartímabil sem ekki er lengra en 12 mánuðir. Miða skal við að mörk vinnu- eða hvíl- dartíma séu annaðhvort: hámarksvinnutími, sent ekki má vera lengri en 14 klukkustundir á hverju 24 klukku stunda tímabili og 72 klukkus- tundir á hverju 7 daga tímabili, eða lág- markshvíldartími sem ekki má vera skemmri en 10 klukkustundir á hverju 24 klukkustunda túnabili og 77 klukkus- tundir á hverju 7 daga tímabili. Hvíldartíma má ekki skipta á fleiri tíma- bil en tvö og skal annað vara að lágmarki í 6 klukkustundir og ekki skal líða meira en 14 klukkustundir til næstu samfell- drar hvíldar. Heimilt er með reglugerð eða í kjarasamningum að víkja frá ákvæðum 1. og 2. mgr. vegna hlutlægra eða tæknile- gra ástæðna eða ástæðna er varða skipu- lag vinnunnar enda sé slíkt í samræmi við almennar meginreglur um verndun öryggis og heilbrigðis sjómanna. Skipstjóri á fiskiskipi getur ávallt krafist þess að skipverji vinni þann fjölda vinnustunda, sem nauðsynlegur er fyrir öryggi skipsins, allra um borð, farms og annarra fjármuna sem á skipi eru, eða til að koma til hjál- par öðrum skipum eða mönnum i sjávarháska. Samgönguráðherra getur sett reglugerð um vinnu- og hvíldartí- ma sjómanna á fiskiskipum. Vinnu- og hvíldartími skipverja á íslenskum farþega- og flutningaskipum Miða skal við að mörk vinnu- eða hvíldartima séu annaðhvort: hámarksvinnutimi, sem ekki má vera lengri en 14 klukkustundir á hverju 24 klukku stunda tímabili og 72 klukkustundir á hverju 7 daga tímabili, eða lágmarkshvíl- dartími sem ekki má vera skemmri en 10 klukkustundir á hverju 24 klukkustunda tímabili og 77 klukkustundir á hverju 7 daga tímabili. Hvíldartíma rná ekki skipta á fleiri tímabil en tvö og skal annað vara að lágmarki í 6 klukkustundir og ekki skal líða meira en 14 klukkustundir til næstu samfelldrar hvíldar. Heimilt er með reglugerð eða í kjarasamningum að vikja frá ákvæðum 1. og 2. mgr. vegna hlut- lægra eða tæknilegra ástæðna eða ástæðna er varða skipulag vinnun- nar enda sé slíkt í samræmi við almennar meginreglur um vern- dun öryggis og heilbrigðis sjóman- na. Skipstjóri á farþegaskipi og flut- ningaskipi getur ávallt krafist þess að skipverji vinni þann fjölda vin- nustunda, sem nauðsynlegur er fyrir öryggi skipsins, allra um borð, farms og ann arra fjármuna sem á skipi eru, eða til að koma til hjálpar öðrum skipum eða mön- num í sjávar háska. Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 2. gr. um vinnu- og hvíl- dartíma skipverja á fiskiskipum tekur gildi 1. ágúst 2003. Frá þeirn tima f'alla úr gildi ákvæði laga urn hvíldartíma háseta á íslenskum botnvörpu skipum, nr. 53/1921. George Best gaf knattspyrnunni áður óþekkta fegurð og þokka. En lífssaga hans er stráð sögnum um konur, kynlíf og baráttuna við Bakkus. ORMSTUNGA „Hann var besti knattspymu- maður sem uppi hefur verið.“ Pelé Sjómannablaðið Víkingur - 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.