Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Page 18
Ámi M. Mathisen sjávanitvegsráðhena svarar fyrirspurnum Jundannanna.
sem veruleg aukning er á ufsa og ýsu á
fiskimiðum allt í kringum landið, skorar
formannaráðstefna FFSÍ á sjávarútvegs-
ráðherra að auka veiðiheimildir verulega
í þessum tegundum, til að koma í veg
fyrir vandræði við botnfiskveiðar.
Um hvalveiðar
Formannaráðstefnan FFSÍ krefst þess
að hvalveiðar hefjist á næsta ári.
Stækkandi hvalastofnar á íslandsmið-
um valda miklum skaða og minnka nýt-
ingu okkar og aflamagn úr mörgum
fiskistofnum.
Um auknar veiðar
færarannsóknir
Formannaráðstefna FFSÍ skorar á sjáv-
arútvegsráðherra að beita sér fyrir aukn-
um veiðarfærarannsóknum í samráði við
atvinnugreinina.
Mikil umræða hefur að undanförnu
farið fram um áhrif veiðarfæra á vöxt og
viðgang fiskistofna við ísland. Brýnt er
að afla meiri þekkingar til að fá svör við
þeim fjölmörgu spurningum sem ósvarað
er.
Um aðgengi að gögnum frá
hafrannsóknaskipinu
Árna Friðrikssyni
Formannaráðstefnan skorar á Hafrann-
sóknarstofnun að koma því í framhvæmd
að hægt verði að nálgast þau miklu gögn
sem safnast hafa í tengslum við notkun
fjölgeisladýptarmælis um borð í Árna
Friðrikssyni, varðandi hnit og dýpistöl-
ur. Ef þessar upplýsingar væru til staðar
á Netinu, gætu metnaðarfullir seljendur
siglingatölva fært upplýsingarnar yfir á
sín tæki og þar með boðið kaupendum
upp á fullkomnari búnað en nú er fáan-
legur, lil hagsbóta fyrir alla aðila máls-
ins.
Um löndun uppsjávarfisks
Formannaráðstefna FFSÍ lýsir hneyksl-
an sinni á algjöru áhugaleysi stjórnvalda
varðandi aðgerðir sem tryggja samræm-
ingu í vigtun uppsjávarfisks.
Það er hreinlega óskiljanlegt að stjórn-
völd láti þá aðila sem taka á móti upp-
sjávarafla, komast upp með það ár eftir
ár að geta hagað búnaði til löndunar að
eigin geðþótta án þess að neitt samræmi
sé milli löndunarhafna og að heildstæðar
reglur um löndunarbúnað séu ekki til og
hafi aldrei litið dagsins ljós að hálfu hins
opinbera. Málið er ekki síst mikilvægt, til
að landað alfamagn sé ávallt ljóst með
tilliti lil þess sem tekið er úr auðlindinni.
Um verðmyndun uppsjávarfisks
Formannaráðstefnan krefst þess að
komið verði á verðmyndunarkerfi fyrir
uppsjávarfisk. Eins og staða mála er hef-
ur kaupandi, sem oftast nær er einnig
seljandi, ákvörðunarvaldið alfarið á sín-
um snærum.
Um hlutaskiptakerfið
Formannaráðstefna FFSÍ lýsir von-
brigðum með óábyrga umfjöllun for-
manns LÍÚ um hlutaskiptakerfið og ósk-
ar eftir að formaðurinn nefni dæmi til
staðfestinga á að skipsljórahlutur hafi
verið 50 miljónir króna á ársgrundvelli á
íslensku fikiskipi. Benda má á að til þess
að skipstjóri næði slíkum launum þyrfti
hann að skila meiri verðmætum að landi
en nokkur dæmi eru urn i sögunni. Af-
komutölur í milliuppgjörum útgerðafyr-
irtækjanna, þar sem urn reksrarhagnað
upp á þúsundir milljóna er að ræða,
benda ekki til að launahlutfall til sjó-
manna standi útgerðum á íslandi fyrir
þrifum. Það er íhugunarefni hvort hags-
munir hluthafa útgerðafyrirtækja séu
æðri hagsmunum íslenskra sjómanna.
Árangurstengd launakerfi mættu að
skaðlausu vera víðar við lýði i atvinnulíf-
inu s.s. í ýmsum stórfyrirtækjum sem
rekin hafa verið gegnum mörg ár með
mígandi tapi án þess að hróflað sé við
ofurlaunum æðstu stjórnenda sem iðu-
lega eru margföld laun annara starfs-
manna. Fegar hlutaskiptakerfið skapar
sjómönnum góðar tekjur aukast tekjur
útgerða að sama skapi.
Um undirbúning næstu kjara-
samninga
Formannaráðstefna FFSÍ telur ekki eft-
ir neinu að bíða með að FFSÍ óski eftir
viðræðum við LÍÚ um kjarasamning.
Miðað við fyrri reynslu er tímabært að
könnunarviðræður hefjist milli aðila sem
fyrst þar sem meðalmeðgöngutími
samningaviðræðna hefur undanfarið ver-
ið u.þ.b. 15-18 mánuðir en það er
einmitt sá tími sem liðið hefur áður en
stjórnvöld hafa snúist á sveif með vinnu-
veitendum og tekið samningsréttinn af
sjómönnum.
Öryggismál
Formannaráðstefnan fagnar framtaki
samgönguráðuneytisins varðandi örygg-
isviku sjómanna.
Allt starf sem stuðlar að auknu öryggi
og velferð sjómanna skilar sér á jákvæð-
an hátt, margfalt til baka. Allar rann-
sóknir sem leiða til betri heilsu og færri
slysa eru í heild málaflokkur sem sífellt
þarf að halda á lofti og leggja mikla á-
herslu á.
Því betur sem að sjómönnum er búið,
þeim mun minni verða útgjöld þjóðfé-
lagsins í heild.
Ráðstefnan skorar á stjórnvöld að sjá
til þess að nægilegu fjármagni verði varið
til “Langtímaáætlunar um öryggismál
sjómanna”. Mörgum mikilvægum verk-
efnum hefur verið hrundið af stað samkv.
áætluninni en önnur bíða framkvæmda.
Framhaldið byggist alfarið á að fjármagn
til verkefnisins verði tryggt.
f hörmulegum sjóslysum nýlega hefur
það því rniður verið staðreynd að örygg-
istækjabúnaður virkaði ekki eins og til er
ætlast. Formannaráðstefnan krefst þess
að stjórnvöld geri allt sem í mannlegu
valdi er til að tryggja að eftirlit með
virkni öryggisbúnaðar sé ávallt eins og
vera ber samkvæmt ítrustu reglum þar
um.
18 - Sjómannablaðið Víkingur