Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Síða 20
Þegar Reykjanesið, eða Suðurnes eins
og gjarnan er sagt, berst í tal inanna á
millum er það oftar en ekki vegna þess
að þar er alþjóðaflugvöllur og Bláa lónið.
Með fullri virðingu fyrir þeirri starfsemi
sem rekin er á þeim stöðum fara þeir
mikils á mis sem ekki kynna sér ýmislegt
annað sem þetta magnaða svæði hefur
uppá að bjóða og mætti skrifa um það
langt mál. Fyrir þá sem áhuga hafa á út-
vegi og sjómennsku, landslagi eða fortíð
og nútíð, er margt að skoða á Reykjanesi
og þar er að finna fjölmarga möguleika
til fræðslu og dægrastyttingar. Á þessu
svæði eru margir útgerðastaðir enda var
sjórinn og sjávarfang undirstaða byggð-
anna á Reykjanesi öldum saman. Á und-
anförnum árum hefur hvert safnið á fæt-
ur öðru sprottið upp á Reykjanesi og
safnaferð á um þessar slóðir ætti sem
flestir að fara, fyrir utan allt annað sem
þarna er hægt að skoða og gera sér til
yndis og ánægju.
Söfnin á Reykjanesi sem blaðamaður
Víkingsins heimsótti á ferð um Reykja-
nes eru í Duushúsunum í Keflavík, þar
sem eru bátalíkön Gríms Karlssonar
skipstjóra, Fræðasetrið í Sandgerði, Salt-
i gestamóttöku Hótels Keflavíkur.
Sérstæð og fróðleg söfn
í Duushúsunum i Keflavík hefur verið
komið upp safni sem ekki á sinn líka hér
á landi. Par er sýndur bátafloti Gríms
Karlssonar skipstjóra sem sótti sjóinn
unt áratugaskeið. Grímur er einstakur
hagleiksmaður og þarna eru til sýnis um
60 skipslíkön sem hann hefur smíðað af
fádæma listfengi og vandvirkni. Líkönin
eru frá mörgum tímabilum útgerðarsögu
hér á landi og sæfarar munu kannast við
inörg af þeim skipum sem prýða sýning-
arsalinn.
Fræðasetrinu í Sandgerði er ætlað að
tengja saman mann og náttúru og tekst
það mætavel. Pað leggur áherslu á effin
fjögur sem eru fjaran, fiskurinn, fuglinn
og ferskvatnslífið. Þar sem fiskurinn er
annars vegar má finna aflaskýrslur, fróð-
leik um útgerð og upplýsingar frá Haf-
rannsóknarstofnuninni. Gestir geta
Krísuvíkurbergið í Ijósadýrð Steinþórs Jónssonat:
fisksetrið í Grindavík, Byggðasafnið í
Görðum og Minjasafn Slysavarnarfélags
íslands í Garðinum. Þeir sem hafa naum-
an tíma geta farið milli safnanna á einum
degi. Hinir sem vilja njóta lífsins með því
að skoða margt fleira og til dæntis gera
sér dagamun fá sér gistingu á Hótel
Keflavík hjá Steinþóri Jónssyni sem rek-
ur þetta fyrsta flokks hótel af miklum
myndarskap, enda mikill eldhugi og
ferðamálafrömuður sem rnikið hefur lagt
af mörkum til að efla ferðamannastraum
á Reykjanesi og lífga upp á mannlífið
þar. Steinþór er til dæmis frumkvöðull
að hinni árlegu Ljósanótt sem fram fer í
Reykjanesbæ og lýsti upp Krísuvíkuberg-
ið mörgum til undrunar, unaðar og á-
nægju. Þeir setn gista Hótel Keflavík geta
verið öruggir um að njóta þjónustu og
veitinga af bestu sort.
Mörg áhugaverð
söfil
Reykjanesi
20 - Sjómannablaðið Víkingur