Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Page 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Page 33
höll”, sem gefin var út i tilefni af 50 ára afmæli ÚA segir Jón um fyrsta túrinn: „Skipstjóri í þessum fyrsta túr var Sæmundur Auðunsson og það var svo sannarlega mikið happ fyrir ÚA að fá hann sem fyrsta skipstjóra félagsins. Sæmundur var sérstæðasti maður er ég hef kynnst á lífs- leiðinni. Hann var einstaklega vel lesinn, stilltur og mik- ið hraustmenni. Ekki margmáll og heldur málstirður en átti margt til. Hann var úlvals skákmaður og briddsmað- ur til jafns við bestu menn landsins. Sæmundur var ákaf- lega Ujótur að lesa og minnisgóður. Stundum tók hann með sér tvær eða þrjár bækur þegar hann fór niður urn hálftólf á kvöldin og þegar hann kom upp um áttaleytið morguninn var hann búinn að lesa þær. Það sannaði ég mér með því að spyrja hann úr bókunum. Ég vissi ekki um neinn sem þekkti Sæmund og bar ekki virðingu fyrir honum.” Þrír bræður hjá ÚA Sæmundur kom til ÚA árið 1947 en með honurn var bróðir hans Þorsteinn sem 1. stýrimaður. Tveitnur árum síðar kom þriðji bróðurinn, Gunnar, til Akureyrar. Þor- steinn hafði þá tekið við nýju skipi, Svalbak, og Gunnar var 1. stýrimaður hjá honum. Gunnar stoppaði stutt fyrir norðan í fyrstu, fór aðeins tvo túra með Þorsteini. Hann réði sig sem skipstjóra austur á firði en kom aftur til Ak- ureyrar í ársbyrjun 1951. ,/l£tli það hafi svo ekki verið Sæmundur bróðir er fékk mig til að koma norður aftur. Hann hafði verið með Kaldbak en var það að laka við Harðbak. Það varð úr að ég flutti til Akureyrar og tók við Kaldbak af Sæmundi og var með skipið í 5 1/2 ár.” segir Gunnar í afmælisbók Jóns Hjaltasonar. Lengst af voru þrír bræður hjá ÚA, Sæmundur, Þor- steinn og Gunnar. Fjórði bróðurinn, Auðun, var urn tíma stýrimaður hjá Sæmundi. Faðir þeirra flutti líka norður og var bræðslumaður hjá Þorsteini. Árið 1955 hætti Þor- steinn hjá ÚA eftir að skarst í odda með honum og fram- kvæmdastjóranum Guðmundi Guðmundssyni. Ári síðar hættu þeir báðir, Gunnar og Sæmundur. Ástæður voru þær að Sæmundi bauðst framkvæmdastjórastaða hjá fyr- irtækinu Fylki í Reykjavík en Gunnar fékk gott tilboð frá Kletti í Reykjavik. Ferill bræðranna Sæmundur Auðunsson f. 4. október 1917-d. 30 september 1977 Meira fiskimannapróf 1940. Sjómaður á togurum frá árinu 1933. Stýrimaður frá 1940 og síðar skipstjóri í afleysingum. Skipstjóri bv. Kaldbak og bv. Harðbak frá Akureyri 1947 til 1956. Framkvæmdastjóri fyrir Fylki, og skipstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun og síðar framkvæmda- stjóri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Frá árinu 1970 skipstjóri á rs. Bjarna Sæmundssyni til dauðadags. Þorsteinn Auðunsson f. 22. febrúar 1920 Lauk meira fiskimannaprófi frá Stýrimannaskól- anum 1942. Eflir það stýrimaður og skipstjóri. Fyrsta á Skutli og síðar á togurum ÚA frá 1947 til 1955. Skipstjóri i Reykjavík á togurum þar til hann réði sig til Hafrannsóknarstofnunar þar sem hann var háseti þar til hann hætti störfum vegna veikinda, tæplega sjötugur. Gunnar Auðunsson f. 8. júní 1921 Meira fiskimannapróf frá Stýrimannaskóla ís- lands 1944. Sjómennska frá árinu 1936, að lang- mestu á togurum. Fyrst skipstjóri 1948 og lengst af síðan. Skipstjóri á rs. Hafþór og rs. Bjarna Sæ- mundssyni. Hætti störfum sjötugur vegna aldurs en síðustu þrjú árin var hann háseti þar sem reglur sögðu að skipstjórar ættu að láta af störf- um 67 ára. Norlendingarnir ektafínir menn Tryggvi Helgason, lengi stjórnarmaður í ÚA, lét hafa eftir sér í viðtali að það hafi verið rnikið lán að fá bræð- urna norður á frumbýlisárum félagsins. Jón E. Aspar sem vitnað er í hér að ofan segir: „Auðunsbræður sáu til þess að þetta fyrirtæki hélt lífi.” í viðtali í afmælisbókinni seg- ir Gunnar: „Við bræður komum ekki einir norður. Á Akureyri var enga vana togarakarla að fá en togaramennska er töluvert fag, rneira á síðutogurunum en nokkurntnna á skuttogur- um þar sem allt er miklu einfaldara með veiðafæri og að taka trollið inn en áður var. Af þessari ástæðu tókum við með okkur að sunnan úrvals togaramenn sem Akureyr- ingarnir voru fljóti að læra af. Og það verð ég að segja að Norðlendingarnir voru ektafínir tnenn og hef ég ekki séð neina duglegri í fiski eða fljótari að koma fiskinum niður í lest. Það munaði líka unt Helga Háldánarson er stjórn- aði afbragðsgóðu netaverkstæði ÚA. En ég vil undirstrika að sjómennirnir sem komu með okkur bræðrum, llestir með Sæmundi, voru úrvals menn á dekki og ég er ekki neinum vafa um að togaraútgerð á Akureyri á þeim mik- ið að þakka.” Það má nefna það hér að mágur þeirra bræðra, Friðgeir Eyjólfsson sem kvæntur var Elínu Auðunsdótlur, var stýrimaður á Svalbak tneð Þorsteini. Hann lók síðan við skipinu og starfaði hjá ÚA lil ársins 1964. Gísli Auðunsson f. 22. febrúar 1924. Lauk prófi frá Stýrimannaskólanunt árið 1949. Hóf sjómennsku árið 1939 á bátum og togurum. Stýrimaður að prófi loknu og skipstjóri á bátum og togurum frá 1951-1959. Fór að vinna í landi við sjávarútveg en af og lil á bátum eða togurunt Á árunum 1958-66 fór hann fjórar vertíðir sem skipstjóri á humartroll. Frá árinu 1975 var Gísli starfsmaður Siglingamálastofnunar og hætti þar vegna aldurs 1994. Auðun Auðunsson f. 25 apríl 1925 Lauk prófi frá Stýrimannskólanum 1947. Byrjaði ungur til sjós með föður sínum sem háseti og síðar við vinnu á togurum og bátum. Stýrimaður að prófi loknu og fyrst afleysingaskipstjóri á Kaldbak og eftir það skipstjóri á togurum óslitið til ársins. Auðun var einn af fyrstu skipstjórum á skuttogurum er hann tók við Hólmatindi á Eski- firði. Náði strax góðum tökurn á þeim veiðiskap og var skipstjóri á minni skuttogurum fyrir aust- an og vestan. Var á togurum, oft til þess að þjálfa yngri skipstjóra, þar til hann hælti störfum. Sjómannablaðið Víkingur - 33

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.