Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2002, Side 55
Hilmar Snorrason skipstjóri
Utan úr
heimi
Á næstu árum mun mikill fjöldí nýrra tankskipa komafrá skipasmíða-
stöðvum vegna nýrra reglna.
Einfaldur byrðingur að hverfa
Nú þegar nýlega hefur orðið alvarlegt oliumengunarslys við
strendur Spánar þegar olíuskipið Prestige brotnaði og sökk hafa
komið háværar raddir um hættur af völdum ofíuskipa sem eru
með einfaldan byrðing. Alþjóðasiglingamálastofnunin IMO hef-
ur samþykkt að banna slík skip en það bann mun ekki taka gildi
fyrr en í ársok 2007. Yfir 80% tankskipa með einföldum byrð-
ing munu verða rifin fyrir árslok 2007 en talið er að í kjölfarið
fylgi skortur á olíuskipum af stærðinni 10.000 - 40.000 tonn og
einnig risaolíuskipum yfir 320.000 tonn að burðargetu. Eru
þetta hugsanlega götin sem menn geta stagað í ef þeir hyggja á
að fara út í kaupskipaútgerð? Það er hugsanlegt, en það sem
mælir gegn því er að ekki mun verða auðvelt að fá skip af þess-
ari stærð smíðuð þar sem rnikil eftirsókn er í smíði tankskipa.
Veikindi á skemmtiferðaskipum
Sjúkdómar hafa verið að herja verulega á farþega skemmti-
ferðaskipa vestur í Bandaríkjunum. Um 700 manns fengu svo-
kallaðan “Norwalk” vírus í þremur ferðum skipsins Amsterdam
sem er í eigu Holland America Line. Einkenni vírusins eru nið-
urgangur og uppköst og er talið að hann hafi borist milli farþega
um borð í skipinu en tengist ekki matareitrun. Einn farþegi, 56
ára karlmaður, hefur látist af völdum þessa vírus að því að talið
er. Skipið var tekið úr áætlun og unnu 600 manns í 10 tíma við
að sótthreinsa skipið hátt og lágt eða eins og það var orðað að
jafnvel pókerpeningarnir voru sótthreinsaðir. Skemmtiferðaskip-
ið GT Disney Magic varð einnig fyrir álika sýkingu en það hefur
ekki enn verið staðfest hvort um umræddan “Norwalk” vírus
væri að ræða. Yfir 100 farþegar og einnig nokkrir skipverjar
kvörtuðu undan veikindum sem líktust infúensu tilfelli en ekk-
ert hefur verið gefið út um hvað þar var eiginlega á ferðinni. Út-
gerð skipsins tekur að minnsta kosti enga áhættu hvað þetta
varðar og er skipið að fara í allsherjar sótthreinsun frá stefni og
aftur í skut eins og það var orðað af hálfu útgerðarinnar.
Erfiðleikar skipasmíðastöðva
Nýlega kom út skýrsla Evrópuráðsins um skipasmíðar í heim-
inum. í henni kemur fram að nýsmíðaverð skipa er um þessar
mundir það lægsta sem sést hefur í áratug. Á fyrrihluta ársins
2002 drógust pantanir á nýsmíðum saman um nærri því tvo
þriðju samanborið við árið 2000. Innan Evrópu eru þessar töl-
um um fjórir fimmtu. Mestur samdráttur er í eftirspurn eftir
gáma- og skemmtiferðaskipum en einnig eru farin að sjást merki
um samdrátt í olíu- og gasskipum. Orskirnar liggja í samdrætti á
mörkuðum en einnig eru evrópsku skipasmíðastöðvarnar í
miklum vanda vegna ósanngjarna undirboða frá Asíu. Þessi
undirboð hafa svo sannarlega haft gífurleg áhrif á skipasmíða-
stöðvar í Evrópu og hafa margar meðal annars lýst sig gjald-
þrota á siðustu mánuðum. Nú er ljóst að nýja Norræna verður
síðasta skip sem smíðað verður hjá Flender Werft en engar
pantanir liggja fyrir hjá því fyrirtæki. Einasta von 800 starfs-
rnanna er smíði vindmylla. Ein öflugasta skipasmiðastöð á síð-
ari tírnum, Stoczina Szczecinska í Stettin í Póllandi, hefur verið
tekin til gjaldþrotaskipta en þessi skipasmíðastöð smíðaði með-
al annars Brúarfoss fyrir Eimskip árið 1996. Þar misstu yfir
6000 manns vinnu sína en stöðin var sú 11 stærsta í heiminum.
í Noregi hefur skipasmíðastöðin Fosen Mek Verksted orðið
gjaldþrota en þessi stöð lauk fyrr á þessu ári við smíði á
skemmtiferðaskipinu The World. Mjellem & Karlsen Værft í
Bergen var einnig lýst gjaldþrota og þar misstu 450 manns
vinnuna. Finnyard í Finnlandi ætlar að segja upp helmingi af
1000 manna starfsliði sínu þar sem engar pantanir liggja fyrir
hjá þeim. Hollenska stöðin Van der Giessen-de Nord sagði upp
270 starfsmönnum vegna samdráttar. Það þótti dapurleg sýn
þegar síðasta skipi var nýlega hleypt af stokkunum hjá Örskov
Staalskibsværft i Frederikshavn í Danmörku og lýkur þar 44 ára
langri sögu skipasmíðastöðvarinnar. Hún smíðaði sex þeirra
skipa sem nú eru í eigu íslenskra útgerða en það eru skipin
Dettifoss, Goðafoss, Brúarfoss, Selfoss, Arnarfell og Helgafell. Þá
smíðaði stöðin einnig skip sem var í eigu Samskipa og bar nafn-
ið Skaftafell.
Bann við stórum gámum
Varaforseti A.P. Möller útgerðarinnar dönsku, Knud
Pontoppidan, hefur óskað eftir að sett verði á laggirnar nefnd
innan Evrópuráðsins til að fara yfir ákvörðun ráðsins um að
banna komu gáma sem eru 45 fet að lengd til hafna í Evrópu.
Bannið á að taka gildi á árinu 2006. Segir Knud að ef Evrópu-
ráðið muni ekki endurskoða og falla frá þessari kröfu mun um-
ferð flutingabifreiða aukast gífurlega, flytjendur þyrftu að nota
tvo gáma í stað eins svo dæmi væru tekin af neikvæðum áhrif-
um af þessu banni.
Reiðir sjómenn
Bandarísku sjómannafélögin hafa deilt hart á olíuhreinsunar-
stöðvar í Texas sem hafa tekið upp þá stefnu að neita bandarísk-
um sjómönnum af olíuskipum að fara í land þar sem skip þeirra
koma með farma í einkahafnir olíufélaganna. Mikil reiði er
meðal sjómanna sem benda á að þeir séu nógu góðir þegar þeir
þurfa að fara með vopn og sprengjufarma til átakasvæða þar
sem þeir geta verið sprengdir i loft up hvenær sem er en fái
ekki að fara um hafnir heimavið þar sem þeir séu álitnir hryðju-
verkamenn. Yfir 20% hreinsunarstöðva við Houston fljótið hafa
tekið upp þessa stefnu en mun fleiri aðilar hafa fyrir margt
löngu tekið þetta upp gagnvart erlendum áhöfnum sem til
þeirra koma. Nú ættu væntanlega bandarískir sjómenn að skilja
þá hörðu framkomu sem bandarísk stjórnvöld beita marga sjó-
menn sem til hafna í Bandaríkjunum koma. Fróðlegt verður að
sjá hvort þeirn verður ágengt í því að fá að fara í land og hvort
þeir muni síðan halda áfram þessari mannréttindakröfu gagn-
vart erlendum sjómönnum í kjölfarið.
Smygl
Við íslendingar höfu svo sem heyrt eitthvað um smygl í gegn-
um tíðina og þar hefur aðallega vín, áfengi og tóbak verið vin-
sælustu hlutirnir sem þá leið fara. Vissulega hefur óvenjulegir
Sjómannablaðið Víkingur - 55