Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2005, Side 19
is væri ekkert að finna uin hryðjuverk í
núgildandi lögum.
•
Verkefnin Gæslunnar munu fara ört
vaxandi meðal annars vegna mannsals,
smygls, hryðuverkaógnarinnar og griðar-
legrar aukningar í skipasiglingum sem
útlit er fyrir að verði á næstu árum.
Rússar hyggjast stórauka olíuflutninga
frá Murmansk til Bandaríkjanna og þá
liggur leiðin um íslenskt hafsvæði.
Mönnum liggur sitthvað á hjarta. Guðjón
Petersen segir það tölvunni, Árni Svcrrisson
scgir það Stefáni Garðarssyni en Ægir Steinn
Steinþórsson birgir það inni. Fyrir aftan
Heimi Ttyggvason er Vilhjálmur Óli Valsson
og villfá orðið.
Þjóðir sem hafa hýst hentifánaskip eru
teknar að úthýsa þeim, sagði Sigurður
Steinar, vegna þrýstings manna eins og
Árna Mathiesen sent hefði unnið ötullega
að þessu máli. Belize væri ein þeirra
þjóða sem hefðu tekið rækilega til í
skipaskránni hjá sér.
Þrátt fyrir vaxandi umsvif er fjárveiting
Árni þakkarfróðlega leiðsögn. Björgvin
Amaldsson hlýðir á.
Eyjamenn; lengst til vinstri erformaður Vcrð-
andi, Bergur Kristinsson, þá Sigurbjöm Árna-
son og Halldór Guðbjörnsson.
Alþingis til Gæslunnar lægri á næsta ári
en 2005.
•
En bjartar vonir vakna og nú á að
byggja nýtt varðskip.
Það mun ekkert endilega þýða blóm í
haga, benti einn fundarmaður á, og rifj-
aði upp raunasögu Hafrannsóknastofn-
unar. Árið 2000 fékk stofnunin nýtt skip
frá Chile sem allar götur síðan liefur
kotnið illa niður á allri starfsemi Hafró.
Fjárveitingar fylgdu ekki með.
•
Og þannig var það líka með TF-Líf.
Fjárveitingar fylgdu ekki með svo stjórn-
endum Gæslunnar hefur verið gert að
meta hverju sinni hvort sé þarfara að
halda úti varðskipi til gæslu eða þyrlu til
björgunar.
I lokfyrri fundardags fóru fundargestir í heimsókn í hið nýja vöruhús Samskipa. Þar tóku þau Hildur Arnardóttii; Sólrún Höskuldsdóttir og Björg-
vin Arnaldsson við mannskapnum og lciddu hann um þetta eitt hið stœrsta hús íslands ef cklti það stærsta.
Sjómannablaðið Víkingur - 19