Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2005, Blaðsíða 31
ni
005
Hilmar Snorrason ajhcndir Jóni Páli Ásgeirssyni, yfirstýrimanni á Ægi, 1. verðlaun í Ljósmyndasamkcppni sjómanna 2öö5.
etta er í fjórða sinn sem Sjómanna-
blaðið Víkingur blæs til ljósmynda-
keppni sjómanna. Mikill áhugi hefur
verið meðal sjómanna hér á þessari
keppni og hafa að jafnaði borist um 70
myndir. Keppni þessi er undanfari nor-
rænnar ljósmyndakeppni sjómanna sem
fram fer í febrúar á næsta ári.
Margir sjómenn hafa spursl fyrir um
keppnina og velt því fyrir sér hvort þeir
geti verið með og þá með hverskonar
myndir. Reglur keppninnar eru mjög
einfaldar. Aðeins þarf að hafa verið á
sjó til að geta tekið þátt og myndirnar
mega vera bæði gamlar myndir sem og
ekki nauðsynlega frá lífi og slarfi um
borð eða á sjó. í byrjun janúar mun
þriggja manna dómnefnd velja þrjár
myndir til íslenskra verðlauna og einnig
12 aðrar rnyndir sem síðan fara allar í
norrænu keppnina sem haldin verður í
febrúar.
Eins og áður sagði eru keppnisreglur
ekki flóknar en myndirnar þurfa að vera
leknar af sjómönnum. Myndefnið má
vera hvort heldur sem er myndir teknar
um borð eða í landi í landlegum. Ekki
er skilyrt að myndirnar séu teknar á
þessu ári heldur gela menn farið í
myndasafnið sitt í leit að myndum.
Senda má inn ntyndir i hvaða formi sem
er, á pappír, sem litskyggnu eða á staf-
rænu formi. Séu tök á er óskað eftir að
filmur séu sendar með sem og að staf-
rænar myndir séu sendar í mestu gæð-
um. Ákjósanlcg stærð mynda er 20x30
en þó ekki skilyrt. Hver ljósmyndari má
senda inn 15 myndir. Allar ljósmyndir
skulu merktar ljósmyndara og einnig eru
ljósmyndarar hvattir lil að gefa myndinni
nafn og láta fáeinar línur fylgja með sem
lysa myndaefninu.
Sjómannablaðið Víkingur áskilur sér
rétt til birtingar á myndunum í blaðinu
án cndurgjalds. Sama á við um birtingu
mynda sem sendar verða í norrænu
keppnina en þau norrænu sjómannablöð
sem að keppninni standa áskilja sér
einnig rétt til að birta myndirnar án end-
urgjalds.
Myndir skulu sendar blaðinu í um-
slagi merktu Ljósmyndakeppni Sjó-
mannablaðsins Vikings, Borgartúni 18,
105 Reykjavík. Þá er hægt að senda
myndir á tölvutæku formi á
iceship@hn.is merkt Ljósmyndakeppni.
Aðeins skal senda eina mynd í einu ef
sent er á tölvupósti. Síðasti skiladagur
er 31. desember 2005.
Sjómannablaðið Víkingur - 31