Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Qupperneq 10
Formannaráðstefna FFSÍ
Um 100-200 manns
byggju í Eyjum
- ef hér vceri
ekki sjávar-
útvegur, sagði
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
á formannaráð-
stefnu FFSÍ
An sjávarútvegs byggju um 100-
f , 200 manns í Vestmannaeyjum
sem væru að vinna í ferðaþjónustu og
því tengdu,“ sagði Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar, á formannaráð-
stefnu FFSÍ sem haldin var í Eyjum.
Binni, eins og hann er jafnan kallaður,
kom víða við í áhugaverðum fyrirlestri
og talaði um mikilvægi þess að sjómenn
og útgerðarmenn stæðu saman. „Það má
líkja þessu við ÍBV. Ef liðið vinnur ekki
allt saman þá vinnast engir titlar. Þetta
er sameiginlegt hagsmunamál okkar
og við eigum þetta allt saman. Það er
mikilvægt að við séum ekki að slást
innbyrðis. Sjávarútvegurinn var mikil-
vægasta greinin í landinu og hún getur
orðið það aftur. Menn eru ekki að slást
Sigurgeir Brynjar Krístgeirsson framkvœmda-
stjóri VSV
í bönkunum, þar vinna menn saman
og eru að ná frábærum árangri," sagði
Binni og talaði næst um mikilvægi þess
að góðir menn fengjust til að stjórna
skipum. „Þetta eru menn sem eru á
góðum launum, oft með þau hæstu sem
fyrirtækið greiðir. Það er mikilvægl að
þeir séu góðir stjórnendur og taki réttar
ákvarðanir.“
Ekkert mál að hreinsa upp fiski-
miðin
Binni sagði að með þeirri tækni sem til
staðar væri í dag væri auðvelt að hreinsa
upp öll fiskimið við ísland.
„Mikilvægasta sameiginlega hagsmuna-
mál okkar er umgengni um fiskimiðin og
án nokkurs vafa er uppbygging þorsk-
stofnsins besti fjárfestingarkosturinn í
íslenskum sjávarútvegi í dag. Við verðum
að setja okkur markmið til lengri tíma
og vinna sarnan," sagði Binni og spáði að
lokum í stöðu sjávarútvegsins eftir 10 ár.
„Ég geri mér vonir um að þá verði fiski-
stofnar við ísland stórir og verð gott. Að
sjávarútvegur verði eftirsótt grein og að
illdeilum um og innan stéttarinnar verði
lokið," sagði Binni að lokum.
Valur Bogason, Halldór Guðbjörnsson, Bergur Krístinsson, Ægir Steinn Sveinþórsson, Vilhjálmur Sigurðsson, Heimir Tryggvason, Harald Holsvik, Reynir
Björnsson, Árni Bjarnason, Stefán Birgisson, Vignir Traustason, Bergur Guðnason, Guðjón Armann Einarsson, Jóhannes Jóhannesson, Örn Einarsson.
10 - Sjómannablaðið Víkingur