Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2006, Qupperneq 55
Skipshöfnin á kútter Emilie RE 25
Kútter Emilie RE 25 fórst í mannskaðaveðrinu míkla 7. april 1906 með allri áhöfn, en Ijósmyndin mun tekín í lok úthaldsins haustið 1905. Á myndinni eru tveir semfóru
ekki í hina afdrifariku sjóferð. Guðmundur Bjarnason, fjórðif.v. í efstu röð, en hann varð gamall maðui; og Ólafur Helgasonfrá Kringlu á Akranesi, fjórði f.v. i annarri röð.
Hann drukknaði daginn eftír að myndin var tekin á opnu skipi ásamt tíu öðrum, þar á meðal þremur bræðrum sínum sem einnig voru að koma heim af skútum og systur, á
Skagaflösinni rétt við land á Akranesi.
Á myndinni eru ífremstu röð f.v.: Hanncs Ölafsson á Miðbýli á Akranesi, 23 ára, óþekktui; Árni Guðmundsson á Suðurvöllum á Akranesi, 44 ára, óþekktur og Guðmundur
Magnússon l Efstabce á Akrancsi, 59 ára. í annarri röð f.v.: Ólafur Ólafsson í Bakkabúð á Akranesi, 47 ára, Þorsteinn Bjarnason i Háuhjálcigu á Akranesi, 17 ára, Ásgcir
Ólafsson frá Stóru-Fellsðxl, Ólafur Hclgason á Kringlu, Guðmundur Kristjánsson á Sólmundarhöfða á Akranesi, 15 ára, óþekktur og Magnús Ólafsson á Bjargarsteini á
Akrancsi. í þriðju röð f.v.: Guðmundur Bjamason í Háuhjáleigu á Akranesi, 22 ára, Einar Tjörvason á Hvoli á Akranesi, Guðlaugur Ólafsson á Bakka í Reykjavík, Björn
Gíslason skipstjóri á Bakka í Reykjavík, óþekktur og óþekktur. I efstu röð f.v.: Sigurður Jónsson á Suðurvöllum á Akranesi, 47 ára, Guðmundur Helgason á Kringlu á Akranesi,
Guðmundur Þorsteinsson i Sjóbúð á Akranesi, 49 ára, óþekktui; óþekktur og Guðmundurjónsson á Sigurstöðum á Akranesi.
Vœntanlegt er hjá útgáfunni Kátir voru karlar ehf ritverkið
ÚTGERÐ OG SKIP I-VI
Útgerðarfyrirtækið Kátir voru karlar
ehf. vinnur nú að útgáfuundirbúningi
á ritverkinu Útgerð og skip. Þar er gerð
grein fyrir útgerðaraðilum í íslenskum
sjávarútvegi allt frá tímum þilskipaút-
gerðar og fyrstu kaupskipunum. Sögð
er útgerðarsaga hvers útgerðarstaðar á
íslandi frá fyrstu tíð og gerð grein fyrir
öllum þeim sem gert hafa út skip yfir tólf
smáleslum. Sögulegt ítarefni er birt um
þá sem markað hafa spor í útgerðarsög-
una og sérstök áhersla er lögð á að segja
sögu einstakra skipa hverrar útgerðar.
Saga allra skipa sem náð hafa tólf
smálestum er rakin. íslensk skip hafa
verið skráð undir skipaskrárnúmerum
frá árinu 1964, en fyrir þann tíma höfðu
íslendingar gert út álíka mörg skip
sem í ritverkinu hafa einnig fengið sín
skipaskrárnúmer. Alls nær skipasagan
yfir um fjögur þúsund skip með rúmlega
átján þúsund nöfnum, og er hún rakin
eftir skipskrárnúmerum og i tengslum
við sögu einstakra útgerðannanna eða
útgerðarfyrirtækja.
Mikil myndasöfnun stendur yfir til að
hægt verði að birta myndir af öllum þeim
skipum sem einhvern tíma hafa verið
mynduð, en á annað hundrað þúsund
myndir hafa verið skannaðar til að velja
úr í ritverkið.
Útgáfunni væri fengur í hvers kyns
heimildargögnum og ljósmyndum sem
tengjast íslenskum útgerðarmönnum og
íslenskri útgerðarsögu.
Þeir sem geta lagt útgáfunni lið er bent
á að hafa samband við Kátir voru karlar
ehf. í Haukanesi 15, 210 Garðabæ, s. 554
6653 eða við ritstjórann Þorstein Jónsson
í s. 893 6653.
Sjómannablaðið Víkingur - 55