Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Qupperneq 4
Sjómanna-
dagurinn
Hátíðisdagur sjómanna hefur í áranna rás skipað veglegan sess í hugum lands-
manna. Þessi dagur hefur víða tekið miklum og afgerandi breytingum, með sama
hætti og fjölmargt annað í þjóðfélaginu. 1 ákveðnum sjávarplássum er þessi dagur
nú sem endranær einn stærsti viðburður ársins s.s. í Vestmannaeyjum þar sem mér
er tjáð að um þriggja daga hátíð sé að ræða sem standist fyllilega samanburð við
þjóðhátíð Eyjamanna um Verslunarmannahelgina.Hlutur sjávarútvegs í atvinnulíf-
inu í Eyjum er gríðarlega stór og þar af leiðandi eðlilegt að vegur sjómannadagsins
sé eins og raun ber vitni.
Annarsstaðar hefur fjarað undan deginum með það afgerandi hætti að ekki er
lengur um neina ákveðna dagskrá eða dægrastyttingu að ræða. I gegn um tíðina
hafa hátíðahöld dagsins viða verið sjálfbær ef svo má segja, þar sem tekjur af dans-
leikjum ogmerkjasölu auk mikillar sjálfboðavinnu velunnara sjómannadagsins
leiddu tif þess að fjárhagsleg niðurstaða var réttu megin við núllið og stundum
jafnvel talsverður afgangur.
Þar sem ég þekki best til, þ.e.a.s. á Akureyri, hefur þessi dagur um langan aldur
farið fram með þeim hætti að sjómennirnir hafa verið í sannkölluðu aðalhlutverki
við að skemmta sjáfum sér og öðrum. Það hafa þeir gertmeð því að taka virkan
þátt í því sem fram hefur farið. Þar má nefna guðsþjónustur, minningarathöfn
um drukknaða sjómenn, ræðuhöld og heiðranir eldri sægarpa,knattspyrnumót,
golfmót, stakkasund, koddaslag, reiptog, pokahlaup og kappróður svo eitthvað sé
nefnt, allt með þátttöku sjómannanna sem margir hverjir eru að kvöldi dags orðnir
dauðþreyttir eftir átök dagsins ogþar af leiðandi ekki í besta formi til að mæta á
sjómannadansleikinn um kvöfdið.
Hvort sem þreytu er um að kenna eða öðru þá er það staðreynd að sá bragur
sem víða um land einkenndi hátíðahöld Sjómannadagsins hefur tekið allnokkrum
stakkaskiptumfrá þvisem áður var.Einhverjar af stærstu útgerðunum hafa komið
á koppinn eigin árshátiðum þar sem þær bjóða starfsmönnum sínum í dinner og
skemmtun með pompi og prakt.en draga sig í staðinn að nokkru eða ölluleyti út
úr beinni þátttöku í hátiðahöldum Sjómannadagsins. Þetta hefur haft í för með
sér að dregið hefur úr þeirri almennu þátttöku sjómannanna sem áralöng hefð var
fyrir. Þaðleiðir síðan til þess að þær fjárhagslegu forsendur sem byggt hefur verið á
eru ekki fengur til staðar.
Glæsilegir viðburðir á borð við Fiskidaginn mikla á Dalvík sem svo sannarlega
vekja athygli á sjávarútvegi hafa litið dagsins ljós ogeru komnir til að vera. Þar
fer saman ótrúleg samheldni íbúanna og jákvætt viðhorfeigenda fiskvinnslu og
útgerðar á Dalvík en þeirra aðkoma er að sjálfsögðu forsendan fyrir tilurð þessa
merkilega dags.
I Reykjavík hafa hlutir þróast með þeim hætti að nú eru hátíðahöldin í kring
um daginn nefnd hátíð hafsins.Þar eiga mestan heiður Reykjavíkurhöfn og
Sjómannadagsráð sem sameiginlega eru bakhjarlar þessara hátíðahalda og án
aðkomu þessara fjársterku aðila væri trúlega lítið um dýrðir í höfuðborginni.
Ljóst er að mínu mati að efviðhalda á hátíðahöldum þessa dags víða um land þá
þarf til að koma fjárhagslegur bakhjarl í hverju pfássi. Hvort stuðningurinn kemur
frá viðkomandi sveitarfélagi eða bæjarstjórn eftir atvikum, útgerðum á viðkom-
andi stöðum, frá samtökum sjómanna eða sameiginlega frá öllum þessum aðilum
er eitthvað sem vinna þarf úr, en verði ekkert að gert þá mun þessi dagur nokkuð
víða heyra sögunni til í þeirri mynd sem við höfum þekkt hann gegn um tíðina.
Hugsanlega hefur þeim sjómönnum fjölgað sem i stað ærsla og gleðiláta kjósa
fremur rólega helgi úti í náttúrunni í faðmi fjölskyldunnar.
Hvort sem sjómenn kjósa rólegheit eða taumlaust fjör, eða eitthvað þar á milli,
þá er þetta þeirra dagur og ég óska þeim af heilum hug til hamingju með daginn.
Árni Bjarnason
Forsíðumyndin: Sœvar Sigmarsson á
Campion hraðbáti Jrá Kanada sem
Vatnasport Jlytur inn.
Mynd: Þorgeir Baldursson.
yfirlit
Sjómenn og aðrir lesendur Víkings
Sendið okkur línu um efni blaðsins,
gagnrýni eða hrós, tillögur um efnis-
þætti og hugmyndir um viðtöl við áhuga-
verða sjómenn, jafnt farmenn sem hina
er draga fisk úr sjó. Hjálpið okkur að
halda úti þættinum; Raddir af sjónum.
Netjið á, jonhjalta@hotmail.com
6
12
16
20
24
36
37
38
39
46
48
54
55
56
62
63
64
66
66
Björn Valur Gíslason yfirstýrimaður rekur sögu
Kleifabergs og minnist á fleiri pólskættaða togara.
Ásgeir Halldórsson, eða Ásgeir málari, segir frá
prakkarastrikum og veiðiskap. Aðalsteinn Bergdal
ræðir við hann.
Bernharð Haraldsson skrifar um hörmuleg örlög
Andreu Doriu.
Danirnir voru afar frumstæðir, segir Alfons Finnsson.
Rafn Kristján Kristjánsson stýrimaður rifjar upp sjó-
ferðasögu sína í rabbi við Sverri Ólafsson.
Kristján Elíasson spyr: Hvað varð um réttindi mín?
Krossgátan.
Hjálmar R. Bárðarson, fyrrverandi siglingamálastjóri,
hefur sent frá sér bókina, Þættir úr þróun íslenskra
fiskiskipa.
Ólafur Bjarni Halldórsson lýsir ferð nýsköpunartogara
á miðin við Grænland.
Gámaskip framtíðarinnar.
Fjörður.
Siglt um netið.
Hver eru „sæskrýmsli" úthafanna?
Skyrbjúgur; fjöldamorðingi en jafnframt auðsupp-
sprettan mesta. Rakin saga þessa mesta hryllis sjó-
manna.
Gáta: Hver er þessi stólpi?
Guðjón Ármann Eyjólfsson bætir við grein sína, um
aðskildar siglingaleiðir við strendur íslands, sem birt-
ist í síðasta tölublaði Víkings.
Utan úr heimi.
Raddir af sjónum.
Lausn krossgátu.
Utgcfandi: Völuspá, útgáfa, í samvinnu við Farmanna og
fiskimannasamband íslands.
Afgreiðsla og áskrift: 462-2515/ netfang, jonhjalta@hotmail.com
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 462-2515,
netfang; jonhjalta@hotmail.com Byggðavegi 101B, 600 Akureyri.
Auglýsingastjóri: Sign'tn Gissurardóttir, sími 587-4647.
Ritnefnd: Arni Bjarnason, Hilmar Snorrason ogjón Hjaltason.
Forseti FFSÍ: Árni Bjarnason.
Prcntvinnsla: Gutenberg.
Aðildarfclög FFSÍ: Félag skipstjórnarmanna, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta,
Skipstjóra- og stýrimannafélögin Vcrðandi, Vcstmannacyjum ogVísir, Suðumesjum.
Sjömannablaðið Víkingur kemur út fjórum sinnum á ári og er dreift til allra félagsmanna
FFSÍ.