Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Blaðsíða 21
Frímann Guðmundsson tekurfisk úr neti.
Myndina tók Alfons um borð í Happasœl KE.
inn var ekki annað en áhugamaður um
vélar - og þegar ég sagði Dönunum að
ég hefði aldrei togað, slíkt gerðu aðeins
skipstjórar og stýrimenn á íslenskum
fiskveiðiskipum, vissi ég ekki hverl þeir
ætluðu. Voru íslendingar virkilega svo
foráttuvitlausir að nýta ekki mannskap-
inn í botn? En skipið var gott, 350 lestir,
og þegar vindhraðinn fór upp i 35 metra,
með tilhlýðilegri ölduhæð, var eins og
það kættist við að brjóta af sér alla sjóa.
Já, sannarlega frábært skip.
Eg þykist vita að í nánd séu breyttir
tímar hjá Alfons.
-Jú, það er rétt. Mér hefur boðisl
vinna hjá Skessuhorninu, að minnsta
kosti næstu þrjá mánuði við að skrifa
og mynda. Ég hef í 18 eða 19 ár verið
lausamaður hjá Morgunblaðinu og mynd-
að fyrir þá. Og skrifað. í>að var frábært að
vinna fyrir Moggamenn.
hegar ég geri mig liklegan lil að setja
lokapunktinn snýr Alfons skyndilega út
í aðra sálrna. Hann lætur brýnnar síga og
horfir á mig alvarlegum augum.
- Menn stela alltof oft myndum.
Mér bregður. Á nú að taka mig á beinið
aftur?
- Af netinu, meina ég.
Ég samsinni án þess að játa nokkuð.
- Þetta er stórt vandamál.
Skipasölurnar eru duglegastar við
þessa iðju. Stóru útgerðarfyrirtækin
hafa líka gerst"sek um slika þjófnaði.
Nú höfum við fjórir, ég, Jón Páll hjá
Gæslunni, Þorgeir fyrir norðan og Hafjrór
Hreiðarsson á Húsavík, tekið höndum
saman um að verjast þessurn órétti. Allir
höfum við sett fjöldann allan af myndum
inn á skip.is þaðan sem þær eru teknar
ófrjálsri hendi. Við vöktum þetta fyrir
hvern annan og rukkum þá tvöfalt sem
stela frá okkur.
Brúnin á Alfons léttist mikið þegar
hann segir: - En ef menn hafa samband
við okkur og vilja kaupa rnyndir til
birtingar þá erum við, allir fjórir, hinir
ljúfustu að eiga við. Og það þori ég að
fullyrða að við erum afar sanngjarnir í
verðlagningu.
Ryöfríir
stálbarkar
Barhasuða Guðmundar ehf.
Vesturvör 27 • 200 Kópavogur
Sími: 564 3338 • Fax: 554 4220
GSM: 896 4964 • 898 2773
Kt. 621297 2529
Hitaveitur • Pústkerfi • Vatnslagnir
Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir
Viðgerðir og smíði á þenslumúffum
Sjávarútvegssvið
Ráðgjöf og umsjón með kaupum og sölu
á fyrirtækjum (sjávarútvegi.
Skipasala og bátasala - innlend sem erlend.
Miðlun aflahlutdeilda og aflamarks.
Áratuga þekking og reynsla.
Velkomin i viðskipti
Skulagötu 1« 101 Reykjavik • Sími: 566 8800 • 566 8802 • E-mail: vidskiptahusid@vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is
Jóhann Ólafsson
Löggiltur FSS
6SM 863 6323
johann@vidskiptahusid.is
Þórir Matthíasson
Deildarstjóri
GSM 691 4005
tm@vidskiptahusid.is
Snæbjóm Olafsson
Solumaður
'f
Unnþór Halldórsson
Sölumaður
GSM 898 0826
unnthor@vidskiptahusid. is
Vilhjálmur Ólafsson
Sjómannablaðið Víkingur - 21