Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Blaðsíða 65
það skráð og hefur þar af leiðandi gefið skipinu ákveðin stimpil
sem fylgir því áfram. Alll er þetta gert til að auka enn öryggi á
heimshöfunum og koma í veg fyrir að annars flokks skip séu á
ferðinni yfir heimshöfin. Á síðasta ári fóru hafnarríkiseftirlits-
menn í Japan um borð í tæplega 22 þúsund skip og voru gerðar
athugasemdir í tæplega 15 þúsund tilfellum eða 69% skoðana.
Að vísu voru margar þeirra aðeins léttvægar alhugasemdir en
athugasemdir samt.
Menn áttu í töluverðu basli við aðfjarlœgja þetta Jlugmóðurskip sem tókst
þó að lokum.
Annað safn
Skip hafa mikið aðdráltarafl og hugsa Grikkir sér eflaust
gotl til glóðarinnar í þeim efnum með Libertyskipinu. En
Bandaríkjamenn hafa verið nokkuð duglegir að varðveita
göntul herskip og reyndar líka nokkur Liberty og Victory skip.
Það var fyrir 23 árum sem flugmóðurskipið Intrepid var gert að
safni í New York höfn og hefur það allar götur síðan haft jafn
mikið aðdráttarafl og Frelsisstyttan og Ernpire State bygging-
in. Ákveðið var að færa það frá Pier 86, þar sem gera á miklar
endurbætur á þeirri bryggju, og þá um leið að nýta tækifærið
til að laka skipið í slipp og gera einnig endurbætur á því. Pað
var í nóvember sem aðgerðin byrjaði en í fyrstu tókst hún ekki
sem skyldi. Búið var að dýpka höfnina til að ná hinu 50 þús-
und tonna flugmóðurskipi frá Pier 86 en sú dýpkun reyndist
ekki nægjanleg og komst skipið hvergi. Eftir fjögurra vikna
dýpkun til viðbótar, sex dráttarbáta og 30 þúsund hestöfl lókst
að ná skipinu af stað á ný og á frían sjó eftir 3 tíma. Var skipið
tekið í þurrkvi í Bayonne í New Jersey en mun síðan verða við
aðra bryggju næstu 18 mánuðina þar sem endurbætur fara frarn
á því. Intrepid var, eins og Arlhur M Huddell, smíðað árið
1943 og var það þriðja skipið af 23 Essex flugmóðurskipum
sem smiðuð voru af þeirri gerð. Var skipið í Kyrrahafsflota
Bandaríkjamanna í seinni heimsstyrjöldinni og síðar í Víetnam
frá 1966 til 67. Var því lagt árið 1974.
Meira smygl
Það er víðar sem menn freista þess að auðgast á smygli
er> nýlega var rússneskur skipstjóri handtekinn í höfninni í
Kolding í Danmörku þegar hann reyndi að smygla sígarettum
1 land úr skipi sínu Enisey. Var hann ásaml tveimur Dönum
hnepptur i 14 daga gæsluvarðhald meðan á rannsókn máls-
ins stendur yfir. Ríkislögregluembætlið og skattayfirvöld hafa
til margra ára átt í góðu samstarfi við að leita uppi smyglara
og hafa nú um nokkurn tíma haft eftirlit með Kolding höfn.
Alls fundust 88 þúsund sígarettur eða tæp 5 mill svo talað sé
í smyglstærðum í bíl sem var á bryggjunni við siðu rússneska
skipsins. Til viðbótar hafa 14 aðrir aðilar verið yfirheyrðir
í þessu máli. Grunur leikur á að hér sé á ferðinni markviss
smyglslarfsemi.
Góð afkoma
Ferjusvið Stena Line útgerðarinnar birti nýlega afkomutölur
fyrir árið 2006 og var tnikil gleði þar á bæ þar sem hagnaður
ársins reyndist vera 5,4 milljarðar króna. Var það tvöföldun
frá árinu á undan og ef farið er aftur til ársins 2004 er um
fjórföldun að ræða. Ástæður þessa mikla hagnaðar má rekja til
þess að aukning hefur orðið á fjölda farþega auk þess sem ekju-
skipaflutningar hafa styrkst verulega. Þá má einnig benda á að
félagið er að auki að sjá afrakstur af mikilli endurskipulagningu
sem farið var í fyrir nokkrum árum.
Lausnargjald
Útgerðir eru farnar að hafa verulegar áhyggjur í kjölfar þess
að nýlega var greitt lausnargjald til sómalskra sjóræningja fyrir
tvö skip sem rænt hafði verið undan ströndum Sómalíu. Skipin
höfðu verið í haldi sjóræningjanna í 40 daga þegar þeim var
sleppt en ekkert amaði að áhöfnum þeirra. Það var fyrir lilstilli
ættbálks á Puntlandssvæðinu 1 Sómalíu að samningar tókust
en þeir höfðu milligöngu um viðræður við sjóræningjana. Líta
menn svo á að búið sé að skapa hættulegt fordæmi sem muni
kalla á grimmari aðferðir en hingað til hefur það verið regla í
þessu sambandi að greiða engin lausnargjöld.
Sea Diamond meðan allt lék í lyndi.
Ákærðir
Skipstjórinn og fimm yfirmenn af gríska skemmtiferðaskipinu
Sea Diamond hafa verið ákærðir fyrir vanrækslu í kjölfar þess að
skip þeirra strandaði og sökk við eyjuna Santorini í Grikklandi
5. apríl s.l. Skipstjórinn var reyndar í sinni jómfrúrferð þegar
atvikið átti sér stað og var eftir honum haft að hann hafi verið
full öruggur með sjálfan sig. Var hann að sigla skipinu inn í
stórfenglega gígskál sem skemmtiferðaskip sigla inn í og leggjast
síðan við akkeri þar til að ferja farþega sína í land til skoðunar-
ferða unr þetta forna jarðeldasvæði. 1.200 farþegar voru um
borð auk 400 áhafnarmanna en tveggja farþega var saknað eftir
að skipið sökk 15 tímum eftir strandið en skipið hafði í fyrra
verið keypt frá Finnlandi og bar þá nafnið Birka Princess og
sigldi milli Stokkhólms og Álandseyja.
Sjómannablaðið Víkingur - 65