Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Blaðsíða 45
fylgdist með tækjum í brúnni kepptist
mannskapurinn á dekkinu við að yfirfara
bakborðstrollið. Stjórnborðstrollið var
í hafi. Eftir rúmlega hálfa aðra klukku-
stund kom kallið úr hóbnim —„ híf opp.“
An efa hafa margir togaramenn raulað
texta Jónasar Árnasonar eftir að hann
kom út. „Híf opp æpti karlinn inn með
trollið inn, hann er að gera haugasjó, inn
með trollið inn.“
Eftir rœs og glas tók bátsmannsvaktin
við af stýrimannsvaktinni og bátsmað-
urinn mætti því á grindina. Togvírarnir
voru hífðir viðstöðulaust inn að hlera-
merkjum. Pá var skverað og þess gætt að
skipinu væri lagt þvert á báruna þannig
að trollið héldist klárt frá skipinu og látið
flatreka. Þá voru hlerarnir hífðir upp í
topprúllur á toggálgum. Forhleramaður
og pokamaður smeygðu græjukeðj-
unum á hlerabrakketin og slökuðu síðan
hlerunum niður í græjuna. Flathlekkir
voru nú losaðir úr vargakjöftunum á
brakketunum og voru dauðuleggirnir þá
lausir frá hlerunum. Þá var komið beint
samband milli grandara og togvírs og því
hægt að hífa dauðuleggi og grandara inn
á spil, en rossin voru hífð í topprúllur á
toggálgum. Þar með var trollið komið að
skipshlið. Húkkreipunum hafði nú verið
brugðið á spilkoppana. Forhleramaður
húkkaði fremra húkkreipi í forróp en
pokamaður í afturróp. Næst var híft í
rópana til að draga bússið upp. Græjunni
í afturgálga var húkkað í hlekk á búss-
endanum en gilsvírnum var húkkað
í bússið að framan. Róparnir voru nú
hífðir á innri spilkoppa en gilsinn á ytri.
Gilsari hifði bússið upp yfir lunningu
og inn á dekk. Bobbingalengjan var nú
komin inn fyrir og var gilsinum þá kastað
á höfuðlínuna. Höfuðlínan var hífð inn á
gilsinum og þá lagðist öll dekkvaktin á að
hala netið inn á höndum eða nota rúss-
ann. Til að missa ekki netið út aftur sem
náðist inn á innrólinu þá stigu allir á það
á útrólinu. Þegar komið var að belg var
byrjað að snarla. Mannskapurinn lagðist
á belginn meðan snarlan var færð aflar á
hann. Þetta var þrítekið, belgurinn inn-
byrtur og var þá halað í stertinn. Litla
gils var nú brugðið á vírlegg sem lá að
pokanum og halað þar til pokinn birtist.
Þá var stóra gils húkkað í pokagjörðina
og pokinn hífður fram á síðuna. Pokinn
var hífður inn fyrir á marg dobblaðri
lallu í formastri. Á innrólinu skall hann
1 bakreipið. Feikna mikill aíli var í troll-
inu og þurfti því að gefa slaka á belginn.
Pokamaður hljóp undir pokann og losaði
Pokahnútinn á kolllínunni með hröðum,
öruggum handtökum. Aflinn var tíu
pokar og lét pokamaður einn poka renna
í pokapontið og hnýtti þá pokahnút fyrir
aftur. Vegna mikils aíla hafði pokapontið
verið hækkað upp með H-járnum. Pokinn
var losaður í tíu törnum og var nú komið
að þvi að hefja aðgerð.
Heimildaskrá
Útgefin heimildarit
Ásgeir Jakobsson. 1971. Fiskimaðurinn,
bók til hálpar við kennslu fiskimanns-
efna. Fiski-félag íslands, Reykjavík.
Óprentaðar heimildir
Skipshafnarskrár. B.v. Sólborg ÍS-260.
1951-1953.
Munnlegar heimildir
Guðjón Arnar Kristjánsson
(050744.3459)
Togaraferill: Skipstjóri á togurun-
um Guðrún Jónsdóttir, Guðrún
Guðleifsdóttir,
Páll Pálsson. 1968-1992.
Viðtöl 30.6, 15.7. 4.8. 2005.
Guðmundur Halldórsson
(210133.3729)
Togaraferill: Hjálparkokkur ísborg,
háseti og 2. stýrimaður Sólborg, neta-
maður Marz, 2. stýrimaður Úranus, 2.
stýrimaður Austfirðingur,
bátsmaður Norðlendingur., 1. stýri-
maður Steingrímur trölli,
1. stýrimaður Gígja, 1. og 2. stýrimaður
Guðbjartur,
1. stýrimaður og skipstjóri Már. 1949-
1985.
Viðtöl: 15.5., 25.5., 6.6., 21.6., 3.7.,
15.7.,6.8., 20.8., 10.9., 20.9., 2005.
Ólafur K. Björnsson (220325.4079)
Togaraferill: Loftskeytamaður ísborg,
Sólborg, Narfi. 1949-1968.
Viðtöl: 16. maí og 25. júli 2005.
Sjómannablaðið Víkingur - 45