Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Blaðsíða 6
Kleifaberg ÓF-2. Frystitogarinn Kleifaberg ÓF-2 frá Ólafsfirði sem Þormóður rammi - Sæberg hf. hefur gert út var nýlega seldur til Brims hf. á Akureyri. Kleifa- bergið hefur verið gert út frá Ólafsfirði frá miðju sumri 1997 en hafði fram að því verið með heimahöfn í Reykjavík og hét þá Engey RE-1. Pólverjarnir Engey RE-1 var smíðað 1 Stocznia skipa- smíðastöðinni í Gdnyia í Póllandi árið 1974 fyrir Hraðfrystistöð Reykjavíkur og þótti stórt og mikið skip á þeim tíma. Pólverjar smíðuðu fleiri eins skip fyrir Islendinga á þessum tíma sem mörg hver hafa verið áberandi í sögu íslenskrar tog- araútgerðar. Tveir þessara „Pólverja" og systurskip Engeyjar, Ver og Baldur, tók m.a. virkan þátt í landhelgisbaráttunni á sínum tíma og reyndust vel í þeim slag. Annað skip sem einnig var smíð- að í Gdnyia fyrir Hafnfirðinga og hét Guðsteinn áður en það var selt norður í land til stórhuga frænda sem breyttu því í frystitogara og gerðu það út undir nafninu Akureyrin EA-10. Pað skip er enn í rekstri og saga Samherja er öllum kunn enda fyrir löngu orðið að stórveldi í sjávarútvegi. Samherji er reyndar ennþá með einn „Pólverja" á sínum snærum í íslenskri landhelgi, Víði EA-910, sem upphaflega var smíðaður fyrir Skagamenn og hét þá Ver AK, síðan Jón Dan GK, þar á eftir Apríl HF og svo Víðir HF þar til Samherji keypti það. Af fleiri skipum af þessari tegund má nefna þá Ögra og Vigra sem Ögurvík lét smíða fyrir sig og reynd- ust eigendum sinum og áhöfnum alla tíð vel og svo Hrönn sem Hraðfrystistöð Reykjavíkur eignaðist síðar og gerði út sem Viðey RE-6. Pað skip heitir nú heitir Sjóli og er gert út sem þjónustuskip á vegum Sjólaskipa út af ströndum Afríku. 1 dag eru aðeins tveir pólsku togaranna gerðir út frá íslandi, Kleifaberg ÓF-2 og Víðir EA. Eldborg (áður Baldur) sem gerð er út til rækjuveiða á Flæmingjagrunni er ekki skráð hér á landi, Akureyrin í Barentshafi og Sjóli við strendur Afríku. Peir eru því enn á fullu „Pólverjarnir“ á ýmsum vígstöðvum þó aldurinn hafi færst yfir þá. Engey RE-1 En snúum okkur þá að Engey. Eins og áður sagði var það smíðað í Gdnyia árið 1974 fyrir ísfell hf. í Reykjavík en Hraðfrystistöðin í Reykjavík gerði skipið siðan út frá árinu 1984. Engey var eins og systurskip þess að Vigra og Ögra und- anskildum, búin afar öflugri aðalvél, 3.000 hestafla Sgoda-Sulser vél sem þótti vel í lagt á þeim tíma og fannst mörgum nóg um. Þessar vélar hafa hins vegar reynst mjög vel í alla staði eins og best sést á því að þær eru enn á fullum afköstum í þessum skipum og í engu þeirra hefur þurft að skipta um aðalvél þrátt fyrir að hafa verið í botnlausu álagi í meira en þrjá áratugi. Ólíkt öðrum skipum þar sem aðalvélarnar eru oftast nær aftast í skipunum, eru aðalvélar þessara togara framan við mitt skip, beint undir matsal og vistarverum skipverja sem þykir ekkert sérstaklega aðlaðandi í dag. Mjög mik- ill hávaði er frá vélum og öðrum búnaði þeim tengdum eins og menn geta ímyndað sér. Það er ekki mjög þægilegt til lengdar að vera með 3.000 hestafla vél lemjandi við kojustokkinn dögum og vikum saman. En menn hafa látið sig hafa það eins og margt annað til sjós. Engey var upphaflega ísfisktogari og mikið í siglingum á sínum tíma og sigldi tiðum á erlendar hafnir, aðallega með karfa á Þýskalandsmarkað. Skipið hefur bæði verið lengl og breytt i frystilogara auk þess sem efra þilfari þess var lyft til að fá aukna lofthæð á vinnsludekk. Á smokkfiskveiðum Engey og Viðey runnu inn í samein- ingu Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík 6 - Sjómannablaið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.