Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2007, Side 12
Aðalsteinn Bergdal
Ásgeir málari.
sgeir Halldórsson eða
Ásgeir málari eins og hann
er venjulegast kallaður þekkir
tímana tvenna. En hvað kemur
málari sjónum við? Jú, Ásgeir
var nefnilega ýmist í sjó eða á
sjó. Fyrst í sjó og á sjó sem barn
og svo á sjó og í sjó sem ungur
maður og kann svo sannarlega
að segja góðar sjósögur, sögur
sem eru skemmtilega kryddaðar
af þeim sem kann að segja frá.
Ásgeir er fæddur í Leifshúsum
á Svalbarðsströnd, en alinn upp í
Litla- Hvammi, litlu koti er stend-
ur alveg niður við sjó, beint á móti
Krossanesi við Eyjafjörð, sonur hjónanna
Halldórs Valdimarssonar og Katrinar
Guðmundsdóttur.
Klæðlítill í sjónum
„Pabbi kemur upphaflega frá Flatey
og er því Þingeyingur, en mamma frá
Furufirði á ströndum. Því blundar nátt-
úrulega í mér gríðarlega sterk blanda,
sem er galdramaðurinn af Ströndum og
svo monthaninn úr Þingeyjarsýslu.
Þarna var lítill búskapur og því not-
færðum við okkur nálægðina við sjóinn,
en pabbi átti trillu.
Pabbi seldi fisk úr hjólbörum á torg-
inu niður við gamla verkalýðshúsið á
Akureyri. Aðal bissnesinn var að selja
sveilakörlunum nýjan fisk, þeir keyptu
alltaf svo mikið. Ég kom auðvitað
nálægt þessu líka, en óþokkinn blundaði
snemma i mér vegna þessarar Strand-
Þingeysku blöndu.
Á sumrin drógum við mikið fyrir og
fengum kola, rauðsprettu og svoleiðis og
þegar maður var orðinn leiður að selja og
lítið eftir, þá var ég tilbúinn með sand-
kola, sem auðvitað var ekkert líkur fiskur
og seldum kerlingunum það sem rauð-
sprettu.
Það má segja að ég hafi ekki bara alist
upp við sjóinn, heldur líka í honum og
við systkinin lærðum að synda í sjón-
um, en við vorum fimm og syntum öll í
sjónum. Það var oft logn og gott veður
og ósjaldan stálum við árabátum og þá
stakk maður sér oft fyrir borð, svo að
það má segja að ég hafi verið jafn mikið
í sjónum eins og á sjónum. Það hefur
loðað lengi við mig að ég væri alltaf að
synda í sjónum og synti ég m. a. 1991
12 - Sjómannablaðið Víkingur