Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 12
112 NÁTTÚ R U F RÆÐ IN G U RI N N hafa rannsóknir seinni ára leitt í Ijós, en annars er vitneskja manna um þetta fólk mjög í molum, t. d. er alls ekki ljóst, hversu langt það hefur farið suður með austurströndinni. Miklu seinna, eða um 1400 e. K., taka aðrir eskimóar að flytjast að sunnan norður með austurströndinni. Ekki er vitað með neinni vissu, hvað sú byggð hefir náð langt norður, en sennilega hefir hún ekki náð öllu lengra en norður á Scorebysundssvæðið, þó mun liafa verið einhver byggð á Ellueyjarsvæðinu. Þessi byggð hefur verið hvað mest og blómlegust á 16. öld, en síðan fór lofts- lagið kólnandi og hún lagðist að mestu niður. Enskur leiðangur rakst þó á nokkra eskimóa á Clavering-eyju milli 74° og 75° n. br. árið 1822, síðan fara engar sögur af byggðinni þarna norðurfrá. En nokkru sunnar á austurströndinni, í Angmagssalik á svipaðri breiddargráðu og Akureyri, hefir haldizt byggð fram á þennan dag. Árið 1927 lét danska stjórnin reisa byggð á Norðaustur-Græn- landi að nýju með því að flytja nokkur hundruð Grænlend- inga frá Angmagssalik norður í mynni Scoresbysunds og reisa þar smáþorp í dálítilli vík vestan undir Tobinhöfða, var þorpið nefnt Scoresbysund. Þar að auki hefir myndast smábyggð á síð- ustu árurn á Syd Kap, Suðurhöfða, vestan Norðausturfjarðar inni í Scoresbysund-flóanum. Eins og getið er hér að framan, kom enskur rannsóknarleiðang- ur til Norðaustur-Grænlands árið 1822 og er það fyrsti leiðangur- inn þangað, sem sögur fara af. Árið eftir var annar enskur leið- angur á ferðinni á þessum slóðum. Báðir þessir leiðangrar komu á ýmsa staði á ströndinni og voru sumir þeirra skírðir í höfuð leiðangursstjóranna, t. d. Scoresbysund, Sabineeyja og Clavering- eyja; aftur á móti fóru þeir ekki inn í firðina. Árin 1869—70 var þýzkur leiðangur sendur til Norðaustur-Græn- lands; m. a. safnaði hann miklu af plöntum og flutti heim með sér til rannsókna. Leiðangurinn hafði vetursetu á Sabineeyju og gerði merkar rannsóknir á ísa- og snjóalögum og vetrarloftslagi þarna norðurfrá, þær fyrstu á þessum slóðum. Milli 1890 og 1900 heimsóttu tveir danskir og einn sænskur leiðangur Norðaustur-Grænland og drjúgum bættist við þekkingu manna á náttúru þessa norðlæga lands. Á fyrsta fjórðungi 20. aldar- innar var þessum rannsóknum haldið áfram, allmargir leiðangrar

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.