Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 15
NÁTTÚRUFRÆÐI N GURINN
115
7. mynd. Daugaard-Jensensskriðjökull, sá grænlenzkra skriðjökla, sem mest
framleiðir af borgarís, gengur fram i botn Norðvesturfjarðar í Scoresbysundi.
Hér sést fremsti hluti jökulsins og á niiðri myndinni lítill hliðarjökull, sem
gengur frá meginjöklinum inn í mynni lítils dals til vinstri og stíflar hann,
svo í honum hefir myndazt jökullón. Handan skriðjökulsins má sjá jökulkrýnd
fjöll og smáskriðjökla, sem ná niður í miðjar fjallahlíðar.
sem komu hlaupandi í áttina til okkar, en hættu brátt eftirförinni,
þegar þeir sáu, livað við vorum fótfráir. Sennilega hafa þeir verið
forvitnir og ekki haft neitt illt í huga, en við þorðum ekki að
hætta á það, byssulausir og með skeiðahnífa eina að vopni. Eftir
það vorum við mjög varir um okkur og forðuðumst að koma nær
moskusuxunum en bráðnauðsynlegt var, en það var stundum
allerfitt því hinn sauðsvarti litur þeirra fellur víða nærri því inn
í umhverfið.
Isbirni sá ég því miður ekki, en í hálfþornaðri leirleðju á vatns-
bakka á Maríueyju í Óskars Konungs Firði, sáum við mjög greini-
leg og varla nema örfárra mánaða gömul spor eftir ísbjörn. Tveir
leiðangursmenn, sent höfðust við í gömlum veiðikofa við ósa