Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 47

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 47
NÁT TÚ RUFRÆÐIN GURIN N 147 Fullvíst má telja, að öll þessi umbreyting í gilinu og hellinum hafi orðið í hlákunni miklu í febrúar. Ekki er um að villast, að þá hefur vatn með aurburði ruðzt inn um hellisopið. Aðeins fyrsta vatnsgusan kom að hellinum tómum. Hún gat beljað ofan eftir bröttu hellisgólfinu og borið sand og jafnvel grjót alla leið niður í botn í innhellinum. Síðan mun Iiellirinn hafa fyllzt af vatni. Það sýnir sanddyngjan innan við hellismunnann. Hún hlýtur að hafa myndazt í lygnu vatni. Fnn fremur hefur leðjuskánin á gólfi og neðanverðum veggjum hellisins eflaust setzt til úr gruggi vatnsins, sem þar stóð um skeið — enginn veit hve lengi — ef til vil! fáein dægur eða vikur? Allt mun það hafa sigið niður um aurgólfið innst og neðst í hellinum, því að annars staðar eru gólf og veggir úr ósprungnu, þéttu blágrýti. Allar eru þessar breytingar, sem orðið hafa á Mögugilshelli, held- ur til lýta, en stærri lýti voru þó af verksummerkjum annarra at- burða, er þarna hafa orðið bæði í febrúarhlákunni miklu og síðar. Fyrsta nývirki, sem gat að líta á leið minni inn eftir Mögugili í haust, var dauður hrútur. Hornaprétður hausinn með holum augnatóttum reis allhátt upp af miðjum grjótaurnum í gilinu skammt fyrir neðan hellinn. Annars var hræið hálfkafið í aur og sandi, sem vatn hafði bersýnilega borið að því, en ekki hafði það verið dysjað af mannavöldum. Það var lemstrað af grjótruðningi, en auk þess rifið af vargi og allt annað en geðslegt. Virtist mér einsætt að dorri hefði farizt þarna í febrúarhlákunni, og fékk síðar um daginn staðfestingu á því hjá Flallgrími bónda Pálssyni í Fljóts- dal. Nýi aurinn í Mögugili er stórgrýttur og því líkari sem hann Iiafi runnið fram í eins konar aurhlaupi en borizt með vatnsflóði einu saman. Afdrif hrútsins benda enn fremur til, að hlaupið hafi komið snögglega og að honum óvörum. Orsök hlaupsins var þó efalaust úrhelli og leysing — og ef til vill sprungu fram stíflur úr snjó og klaka ofar í gilinu. Ofan á hinni nýju sanddyngju innan við op Mögugilshellis lá dálítill ullarbingur til lítillar prýði. Ullin var slepjuleg og daunill. Ekki eru mér ljós orsakatengsl milli fráfalls hrútsins og þessarar ullargeymslu — ef þau eru þá nokkur. En vart mun hrútur sá hafa farið úr reifi sínu sjálfkrafa á miðþorra, þótt feigur væri, og vissulega liafa hér verið menn að verki.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.