Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 25
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Setlög með Aldur Arnarbeyki Hrútabeyki
plöntusteingervingum (m.á.) Fagus fríearichii Fagus gussonii
Hreðavatn - Stafholt 7-6
Skarðsströnd - Mókollsdalur 9-8 X X X X
Tröllatunga - Gautshamar 10
Brjánslækur - Seljá 12
Dufansdalur - Ketilseyri 13,5 X X X X
Selárdalur - Botn 15 X X X X
xO c xO c
15 c o 15 c O
Z3 03 T3 s Z3 03 33
—1 < UL_ Ll_ 1 < LL_ LL_
1. tafla. Yfirlit yfir setlagasyrpur með plöntusteingervingum, aldur peirra og afstöðu jarðlaga
(sjá 1. mynd). Leifar arnarbeykis (Fagus friedrichiU hafa aðeins fundist í tveimur elstu
setlagasyrpunum sem eru 15 og 13,5 milljón ára gamlar. í setlögum sem eru 12-10 milljón
ára gömul hafa engar beykileifar fundist, en í setlögum sem eru 9-8 milljón ára eru
steingervingar hrútabeykis (Fagus gussonif) áberandi. í yngri setlögum á íslandi hafa ekki
fundist beykileifar. - List ofmost prominent sedimentary formations that contain plantfossils
and their relative age and distribution (see Figure 1). Fossils referred to as Fagus friedrichii
have only been found in two of the oldest sedimentary formations, 15 and 13.5 Ma old,
respectively. Sediments that are 12-10 Ma do not contain any reliable fossils that can be
referred to the genus Fagus. In the younger 9-8 Ma sediments fossils of Fagus gussonii are
quite common. In younger Icelandic sediments no Fagus fossils have beenfound.
Aldur ofangreindra jarðlaga, sem
steingervingar hafa fundist í á Vest-
fjörðum, hefur verið ákvarðaður
með kalíum-argon aldursgreining-
araðferð og argon-argon aðferð svo
og segulmælingum með tengingum
við segultímatal. Greiningar á sýn-
um frá Vestfjörðum gefa til kynna
að elstu hraunlög þar séu 16,0 ± 0,3
milljón ára1", 15,32 ± 0,7 milljón ára11
og 15,86 ± 0.56 milljón ára12. Nýlegar
segulmælingar benda til þess að set-
lögin í Þórishlíðarfjalli í Selárdal og
Botni í Súgandafirði séu um það bil
15 milljón ára.17 í Lambadal og fjall-
inu Töflu í Dýrafirði eru setlögin tal-
in vera um 13,5 milljón ára7-811 og
loks eru setlögin í Hrútagili í Mó-
kollsdal álitin mynduð fyrir 9-8
milljón árum511. Aldur setlaganna í
Töflu og Hrútagili er fenginn með
aldursgreiningum með kalíum-
argon aðferð á hraunlögum ofan og
neðan við setlögin, en einnig teng-
ingum út frá segulmælingum.
Lýsing og greining
BEYKILEIFA
Beykileifar hafa fundist í íslenskum
setlögum sem talin eru 15, 13,5 og
9-8 milljón ára gömul (1. tafla).
Mest hefur fundist af laufblöðum
og hafa þau verið greind til tveggja
tegunda; Fagus friedrichii og Fagus
gussonii. Fyrrnefnda tegundin verð-
ur hér eftir nefnd arnarbeyki (eftir
Arnarfirði), en hin síðarnefnda
hrútabeyki (eftir Hrútagili í Mó-
kollsdal). Báðar tegundirnar eru
formtegundir, og eru tegundalýs-
ingar alfarið byggðar á steingerðum
laufblöðum eða blaðförum. Þar sem
aðeins önnur tegundin, arnarbeyk-
ið, finnst í setlögum sem eru 15 til
13,5 milljón ára er aldinum og fræj-
um sem finnast í þeim setlögum lýst
með laufblöðum arnarbeykis, enda
líklegast að þessi aldin og fræ til-
heyri því. I yngri setlögum sem eru
9-8 milljón ára hefur aðeins fundist
hin tegundin, hrútabeyki, og eru
aldin og fræ sem finnast í þeim set-
lögum talin tilheyra henni. Tegund-
irnar tvær hafa hvergi fundist sam-
an í setlögum hér á landi.
Lýsingar á laufblöðum eru í sam-
ræmi við lýsingar og greiningar-
tækni Dilchers.18 Við lýsingu lauf-
blaða eru notuð öll útlitseinkenni
sem auðvelda greiningu til tegunda
(6. mynd). Þessi einkenni eru m.a.
lögun strengjakerfis frá miðstreng
og niður í minnstu smástrengi, lega
strengjaenda við blaðrönd, lögun
tanna og blaðodds og stærðarhlut-
föll einstakra einkenna. Enginn við-
urkenndur greiningarlykill er til fyr-
ir aldin og bent hefur verið á að erfitt
sé að greina aldin til tegunda þar
sem ytri einkenni afmyndist eða af-
máist oft við flutning, gröft og sam-
þjöppun setlaga. Ytri einkennum
aldina og fræja var þó lýst eins ná-
kvæmlega og unnt er og stærðar-
hlutföll einstakra einkenna metin (6.
mynd). Hér á eftir er þessum tveim-
ur beykitegundum lýst, fyrst lauf-
blöðunum þar sem tegundalýsing-
arnar byggja að mestu leyti á þeim,
þá koma aldinin og loks fræin.
Formfræðilegur samanburður stein-
gervinga beykis við núlifandi teg-
undir og flokkunarfræði beykiættar-
innar er að mestu samkvæmt Denk.19
Arnarbeyki
Fagus friedrichii Grímsson & Denk
- Arnarbeyki
1869 Castanea ungeri auct. (non
Heer). - Heer: bls. 32, mynda-
síða 7, mynd 1-3.20
1869 Fagus antipofii auct. (non
Heer). - Heer, bls 30, mynda-
síða 7, mynd 5-8 (ekki 4).20
1869 IFagus antipofii var. emarg-
inata Heer. - Heer, bls. 30,
myndasíða 7, mynd l.20
1869 Fagus macrophylla auct.
(non Unger). - Heer, bls. 31,
myndasíða 8, mynd 2.20
1946 Fagus antipofii auct. (non
Heer). - Askelsson, bls. 81,
mynd 2.2
1946 Fagus deucalionis auct. (non
Unger). - Áskelsson, bls. 83,
mynd 3.2
1956 Dicotylodonous sp. - Áskels-
son, bls. 46, mynd 4.21
1957 Fagus cf. ferruginea Aiton -
Áskelsson, bls. 26, mynd 2.3
1978 Fagus cf. ferruginea Aiton foss.
Nath. - Akhmetiev o.fl.,
myndasíða 1, mynd 6.5
2005 Fagus friedrichii Grímsson &
Denk. - Grímsson og Denk,
myndasíða 1-8.9
85