Náttúrufræðingurinn - 2006, Blaðsíða 21
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Friðgeir Grímsson og Leifur A. Símonarson
BEYKI ÚR ÍSLENSKUM
SETLÖGUM
Laufblöðum, aldinum og fræj-
um sem tilheyra ættkvíslinui
beyki (Fagus) hefur verið lýst
úr þremur setlagasyrpum á Vest-
fjörðum. I fyrsta lagi úr Selárdals -
Botns setlagasyrpunni, en hún er
talin um 15 milljón ára, þá úr
Dufansdals - Ketilseyrar setlaga-
syrpurtni, sem er líklegast um 13,5
milljón ára, og loks úr Skarðsstrand-
ar - Mókollsdals setlagasyrpunni
sem er 9-8 milljón ára gömul. Beyki-
leifar úr íslenskum jarðlögum hafa
verið greindar til 6-7 mismunandi
tegunda og hefur sú greining að
mestu leyti verið gerð á blöðum eða
blaðförum.12'3'4'5'6'7'8'9 Laufblöð, aldin
og fræ, sem fjallað verður um í
greininni, fundust öll í þessum
þremur jarðlagasyrpum. Rannsak-
aðar voru plöntuleifar úr setlögum í
Þórishlíðarfjalli í Selárdal (15 millj.
ára), Botni í Súgandafirði (15 millj.
ára), fjallinu Töflu ofan Ketilseyrar í
Dýrafirði (13,5 millj. ára) og Hrúta-
gili í Mókollsdal (9-8 millj. ára). Auk
aldina og fræja, sem voru rannsök-
uð úr ofangreindum jarðlagasyrp-
um, var einnig stuðst við frjógrein-
ingar úr nær öllum setlagasyrpum
Vestfjarða og Vesturlands á aldurs-
bilinu 15-6 milljón ára (1. mynd).5-7'8
Með því teljum við að fáist betri
hugmynd um þátt beykis í gróður-
farssögu landsins en áður hefur
fengist. Út frá formfræðilegum ein-
kennum blaða, aldina og fræja, og
þegar tekið er tillit til þess hvenær
beykifrjókorn koma inn í setlögin og
hverfa þaðan, teljum við að unnt sé
að komast að því hvort beykileif-
arnar tilheyri allar sömu tegund eða
hvort um sé að ræða tvær eða fleiri
1. mynd. Setlagasyrpur á Vestfjörðum og Vesturlandi þar sem plöntusteingervingar
hafa fundist. Einnig má sjá hallastefnu jarðlaga og afstöðu til þekktra megineldstöðva.
Byggt á Freysteini Sigurðssyni og Kristjáni Sæmundssyni 198451 og Hauki
Jóhannessyni og Kristjáni Sæmundssyni 198955. - Map of the Northzvest Peninsula and
West lceland, showing distribution of sediments (bold black lines), dip (arroivs), known
central volcanoes (red circles), macrofossils like leaves, cupules and nuts (black leaves),
and pollen (yellow circles with triple striation).
Breiðhilla
Lambadalur
hetilseyri
Selárdalur
A^j-páutshamar
Grýlufoss) Húsavlkurkleif
Txöllatunga/
'Dufahsdalur
rsSeljá/-,
'Mókollsdalur
'Brjánslækui
Skarðsströni
V Langavatnsdalur
}/ Stóri Þrimill
c/ Ha NSelmúli
Þrimilsdalur ' lgak.
, Svartagll
Stafholt
Setlagasyrpa
Jarðlagahalli
Megineldstöö
^ Blöð, aldin og fræ
Frjókorn í/
Ófæruvík
10 20 30 40 KM
Náttúrufræðingurinn 74 (3-4), bls. 81-102, 2006
81