Náttúrufræðingurinn - 2006, Page 51
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
staðurinn sunnan gamla Laufásveg-
ar og vestan gamla Flugvallarvegar.
Kunn kennileiti í næsta nágrenni
voru lengi Pólarnir (Suðurpóllinn)
austan Flugvallarvegar og Miklatorg
þar norður af. (Pólarnir voru íbúðar-
hús úr timbri og bárujárni sem bæj-
arstjóm Reykjavíkur lét byggja á ár-
unum 1916-1918 til þess að leysa
húsnæðisvandræði á árum fyrri
heimsstyrjaldarinnar. Miklatorg var
lengi hringtorg á mótum Hring-
brautar, Snorrabrautar, Miklubraut-
ar og gamla Hafnarfjarðarvegarins.)
Þessi danski höggbor er fyrsti
höggborinn sem borað var með hér
á landi (2. mynd). Höggborar eru
gömul tæki - miklu eldri en sjálf
gufuvélin. Auðvitað voru gufuvélar
farnar að knýja höggbora í olíuleit í
Bandaríkjunum löngu fyrir alda-
mótin 1900. Höggbor borar með
stálmeitli sem er neðan í sverum
stálstamma. Efst á stammanum er
sigurnagli þar sem borvírinn er fest-
ur í. Borvírinn er geymdur á spil-
tromlu. Eftir því sem holan dýpkar
er meira af vírnum slakað með spil-
inu út af tromlunni. Gömlu högg-
borarnir voru ekki með stálvír held-
ur kaðal úr sterkum hampi (manila-
hampi). Það er meiri möguleiki en
minni að svo hafi verið á höggbor J.
Hansen. Ekki þekki ég eða kann
deili á vélbúnaði hans. Hins vegar
tel ég mestar líkur á að það hafi ver-
ið orka glóðarhausvélar sem lyfti
borstammanum upp aftur eftir
hvert högg meitilsins á botni hol-
unnar. I Danmörku, Svíþjóð og
Noregi var á þessum tíma mikill
uppgangur í smíði og notkun lítilla
glóðarhausvéla. Vélvæðing báta-
flotans á Islandi hófst haustið 1902
með því að slík vél var sett í bát á
Isafirði. Fyrstu glóðarhausvélarnar
brenndu steinolíu.9
Líklega hefur J. Hansen brunn-
borari borað a.m.k. tvær ef ekki
þrjár holur í Vatnsmýrinni.3 Fyrsta
holan varð landskunn þegar hún
náði niður á 40 metra dýpi en loka-
dýpi hennar var 55 metrar. Boranir
stóðu yfir til 15. september 1905.
Danski höggborinn var fluttur aftur
til Danmerkur og J. Hansen fór
þangað sömuleiðis.
Ekki erallt gull sem glóir
í Vatnsmýrinni
Eitthvað fannst af vatni í fyrstu hol-
3*—itirf
vi . ■ -J J
2. mynd. Danski höggborinn í Vatnsmýrinni 1905. Ekki er vitað hvaða menn eru á myndinni en líklega er petta „boráhöfnin" þ.e. ].
Hansen og menn hans. Magnús Ólafsson Ijósmyndari tók myndina og nokkrar fleiri við petta tækifæri, líklega á dögum „guUæðisins"
p.e. í apríl. Sigfús Eymundsson gafa.m.k. tvær myndanna rit sem póstkort. Önnur peirra er stereomynd. Undir henni stendur „Gull-
fundurinn í Reykjavík". Húsið í baksýn er hugsanlega Kálfakot.
111