Náttúrufræðingurinn - 1999, Side 10
4. mynd. Horft yfir Flateyri úr gilkjaftinum í um 200 m hœð yfir sjó neðan Skollahvilftar.
Útlínur flóðanna 21. febrúar 1999 (blá heildregin lína) og 26. október 1995 (rauð slitin
lína) hafa verið dregnar á myndina, þar með talin lína sem afmarkar ummerki flóðsins á
garðinum. Gilbrúnirnar að austan og vestan eru skýrðar með svörtum brotnum línum.
Útlínur varnargarðanna eru skýrðar með mjóum punktalínum. Ljósm.: Tómas Jóhannes-
son, 22. febrúar 1999; tölvuteikning: Gísli Kristjánsson.
til þessara áhrifa er skriðlengd snjóflóðsins í
febrúar samt veruleg. I síðustu línu 1. töflu
er gróft mat á fjölda ára sem vænta má að líði
að meðaltali á milli flóða sem ná jafnlangt
eða lengra en flóðin 1999 og 1995 (Tómas
Jóhannesson 1998). Aætlað er að snjóflóð
svipað flóðinu í febrúar 1999 geti fallið u.þ.b.
einu sinni á hverjum 10-30 árum að meðaltali
þegar til langs tíma er litið, en þekkt eru flóð
með áþekka eða meiri skriðlengd árin 1936,
1938-1940,1953, 1963-1965 og 1974, auk
flóðanna 1995 og 1999. Það verður því að
teljast nokkur tilviljun að slíkt flóð falli á
varnargarðana strax á fyrsta vetri eftir vígslu
þeirra. Til samanburðar er áætlað að snjó-
flóð líkt því sem féll í október 1995 geti fallið
að meðaltali einu sinni á hverjum 100-200
árum.
Sjá mátti ummerki flóðsins hátt upp á
leiðigarðinn eins og sýnt er á 2. mynd, sem
sýnir bæði hæð efstu ummerkja sem sýnileg
voru á garðinum og hæð flóðsnævar í
tungunni við garðfótinn eftir að flóðið
stöðvaðist. Flóðið flæddi meðfram garðin-
um á um 400 m löngum kafla og um 13 m upp
á garðinn þar sem það fór hæst. A þeim stað
voru um 4 m frá efstu ummerkjum að toppi
garðsins. Gert er ráð fyrir að efstu ummerkin
hafi myndast þar sem yfirborð hins þétta
kjarna snjóflóðsins náði hæst eða skammt
ofan þess. Ummerki flóðsins á garðinum
sjást á 4. mynd sem tekin er ofan úr hlíðinni
niður yfir garðinn og eyrina.
ÁHRIF LEIÐIGARÐSINS
OG SAMANBURÐUR VIÐ
HÖNNUNARFORSENDUR
HANS
Enda þótt snjóflóðið í febrúar 1999 sé aðeins
um þriðjungur af rúmmáli flóðsins í október
8