Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 16
3. mynd. Sandsteinn úr harðnaðri gosösku íjaðri Arnarbœlis. íbaksýn sér á Hraunsnefsöxl
og Grábrók til vinstri. Ljósm. Sturla Friðriksson.
og upp úr ísnum. Gígaop keilunnar eru með
hraunkleprum og virðast þau óskert af þeim
jökli sem umlukti eldstöðina. Gos þarna í
miðjum dal í lóni og sennilega við jökulrönd
hefur væntanlega komið af stað vatnsflaumi
sem ætt hefur niður um ásana og kann vel að
hafa aukið gröftinn í gljúfri Norðurár við
Myrkhyl. Hefur þá orðið jökulhlaup úr lóni
dalsins og mikið jökulflóð ruðst niður
gljúfrin. Vel geturþykka leirlagið í Hraunár-
stabbanum einmitt hafa myndast í þessu
gosi. Dyngja þessi hefur um skeið stíflað
dalinn. þannig að sérstakt Ión hefur
myndast ofan hennar og náð upp undir
Króksfoss.
■ HÆKICUÐ SjÁVARSTAÐA
Fyrir tæpum 10.000 árum hafði verulega
gengið á jöklana. Hækkað hafði í úthöfum
og þá flæddi sjór langt upp á það land sem
þurrt var í lok jökulskeiðs. Féll þá sjór langt
inn í Norðurárdal og yfir svæði gamla
jökullónsins. Sjávarmörk má nú víða sjá
uppi í miðjum hlíðum dalsins (4. mynd). Rétt
sunnan við bæinn Svartagil er flatt
hamraborð ofan á einum ásnum sem sjór
hefur klappað út. Víða eru brimþrep og mar-
bakkar í 60-80 m y.s. Sjást þau í hjöllum
vestan Hallarmúla. Eggjahorn, sem er á
landamærum jarðanna Hallar og Einifells,
hefur þá verið nöf sem sjórinn hefur svarrað
við. Utar hafa verið boðar, þar sem nú er
svonefndur Fálkaklettur og Grenborg í
Einifellslandi. Sjávarbjarg með lábörðu
grjóti er ofan við Grafarkotsbæinn, vestan
þjóðvegar, og sæbarinn klapparrani er í
landi Einifells nokkuð fyrir neðan Hvararhyl.
Einnig hefur þá safnast sjávarsandur og
fallið í varið framan við klappir og nes. Sést
þessi fíni sandur nú t.d. norðan við bæinn á
Svartagili í um 60 m y.s.
Ekki eru nein merki þess að sjór hafi náð
upp í efri hluta Norðurárdals ofan Sveina-
tungu. Þar eru urðarranar ósléttaðir af vatni.
Hæstu sjávarmörk virðast vera uppi við
Krók f um 80 m y.s. Fyrir neðan Sanddalsá
eru lárétt malarþrep sem líkjasl fornum
marbökkum, og þannig er landið víða neðar í
14