Náttúrufræðingurinn - 1999, Page 45
Sjálfstæðar tegundir
O 9
q—o—p
o
Afbrigði sömu
tegundar
'0
Upphafleg
tegund
sunds eins og seiði venjulegrar salamöndru.
Ljóst er að þessi líkamsgerð er í enguni
tengslum við þá lífshætti sem bíða dýrsins, né
heldur er þetta aðlögun að aðstæðum
fóstursins. Tálknin verða aðeins skýrð sem
aðlögun að lífsvenjum forvera alpa-
möndrunnar; þau eru endurtekning á skeiði í
þroskun þeirra." (Uppruni tegundanna, 14.
kafli.)
Flokkunarkerfið
Margt í því flokkunarkerfi sem líffræðingar
höfðu komið upp fyrir daga Darwins verður
auðskildara ef gengið er út frá sameigin-
legum uppruna tegundanna. Annað í kerf-
inu hefur síðar verið endurskoðað með hlið-
sjón af þekkingu manna á skyldleika flokk-
unardeildanna. Darwin hélt því fram að milli
tegunda og afbrigða væri aðeins stigsmunur:
Ef saman eru bornir flórulistar frá Stóra-
Bretlandi, Frakklandi eða Bandaríkjunum sem
ýmsir grasafræðingar hafa tekið saman, koma í
ljós furðumargar gerðir sem einn lelur fullgildar
tegundir en annar llokkar sem afbrigði. Hr. H.C.
Watson, sem ég stend í þakkarskuld við fyrir
margs kyns aðstoð, hefur bent mér á 182 breskar
plöntur sem yfirleitt eru taldar afbrigði en grasa-
fræðingar hafa einnig flokkað sem tegundir.
(Uppruni tegundanna, 2. kafli.)
14. mynd. Vensl afbrigða og
tegunda. Darwin leit á afbrigði
sem tegundir í mótun. Á
myndinni má sjá hvernig þrjár
tegundir greinast af einni. Fyrst
greinast af upphaflegu tegund-
inni þrír stofnar, afbrigði sem
enn geta átt saman afkvœmi þótt
þau geri það ef til vill ekki.
Síðan verður munurinn of mikill
til þess að kynblöndum geti
orðið og nú má líta á stofnana
sem sjálfstœðar tegundir. Engin
skýr mörk eru samt milli af-
brigða og tegunda. (Eftir
Bowler 1984.)
ÚRVAL NÁTTÚRUNNAR
Darwin var ljóst að ekki þýddi að setja
fram kenningu um þróun tegundanna
nema skýring væri gefin á því hvernig hún
hefði farið fram. Af minnisbókum hans4 má
ráða að hann hafi framan af velt fyrir sér
ýmsum skýringum en smám saman
hneigst að kenningunni um úrval náttúr-
unnar eða náttúrlegt val (natural selec-
tion): Öllum tegundum er áskapaður breyti-
leiki sem gengur að einhverju leyti að
erfðum. Sífellt á sér stað lífsbarátta,
barátta fyrir tilverunni (struggle for life,
struggle for existence), og þeir einstak-
lingar sem best eru lagaðir að umhverfinu
hafa best skilyrði til að lifa og koma upp
afkvæmum (framgangur hinna hæfustu,
survival of the fittest).
Darwin sá tegundarhugtakið í nýju ljósi.
Áður iniðuðu flestir tegundina við fræðilega
grunngerð (,,týpu“) sem allir einstaklingar
hennar ættu að mótast af. En Darwin leit á
tegundina - líkt og Buffon hafði raunar gert
hundrað árum fyrr - sem safn einstaklinga
4 Minnisbækur Darwins (Notebooks) voru gefnar
út á árunum 1960 til 1979 með skýringum ýmissa
fræðimanna. Sjá heimildaskrá hjá Bowler 1984.
43