Náttúrufræðingurinn - 1999, Blaðsíða 49
álits Huxleys áður en hann birti „Uppruna
tegundanna". Eftir að ritið kom út varð
Huxley málsvari þróunarkenningarinnar á
fjölda funda og hlaut fyrir það auknefnið
„bolabítur Darwins". Sjálfur kom Darwin
aldrei fram á mannamótum.
Frægustu ræðu sína í þágu þróunar-
kenningarinnar hélt Huxley á fundi í
Hollvinasamtökum vísinda á Bretlandi (Brit-
ish Association for the Advancement of Sci-
ence) í Oxford 1860. Á fundinum hugðist
Samuel Wilberforce biskup kveða niður
hina háskalegu þróunarkenningu og beindi
meðal annars þeirri spurningu til Huxleys
hvort apinn hefði verið í móðurætt hans eða
föðurætt. Þegar Huxley hafði svarað öðru í
ræðu biskups mælti hann:
Ef ég ætti að svara því, hvort ég kysi fremur að
afi minn hefði verið vesæll api eða maður sem
náttúran hefði allt vel gefið og væri í virtri
áhrifastöðu en beitti gáfum sínum og valdi til
þess að gera alvarlega vísindalega rökræðu
hlægilega - þá kysi ég hiklaust apann. (Tilvitnun
sótt í Encyclopædia Britannica.)
„Uppruni tegundanna" kom út í sex
útgáfum, hin síðasta 1872. Auk þess skráði
Darwin þrjú rit um einstök atriði er snertu
þróunarkenninguna. Þekktast þeirra er
„Ætterni mannsins og val tengt kynferði"
(The Descent ofMan and Selection in Rela-
tion to Sex) er út kom í tveimur bindum
1871.7 í „Uppruna tegundanna“ leiddi Dar-
win hjá sér að fjalla um manninn en að
sjálfsögðu gerðu andstæðingar þróunar-
kenningarinnar ætterni hans að meginmáli.
Þegar kenningin var að mestu farsællega í
höfn treystist Darwin til að fjalla sérstaklega
um þennan þátt hennar.
Eins og flestir menntaðir Vesturlanda-
menn á þessum tíma gekk Darwin út frá því
að hvíti maðurinn væri mun fremri ýmsum
„óæðri“ kynþáttum og hann gat seint lofað
nýlendustefnu Breta nógsamlega og þá
blessun sem hún leiddi yfir mannkyn í fortíð
7 Hin eru Tlie Variation of Animals and Plants
Under Domestication („Breytileiki húsdýra og
nytjaplantna", 1868) og The Expression of the
Emotions in Man and the Animals („Hvernig
menn og dýr tjá tilfinningar", 1872).
og framtíð. Hér verða skýringar Darwins á
uppruna mannkyns ekki raktar, enda bættu
þær fáu við kjarnann í þróunarkenningu
hans.
Darwin fékkst líka við ýmislegt sem kom
þeirri kenningu ekki beinlínis við. Má þar
nefna síðasta rit hans (1881) er fjallaði um
ánamaðka og áhrif þeirra ájarðveg.
í trúmálum gerðist Darwin efahyggju-
maður. Seint á ævinni lýsti hann viðhorfum
sínum svo:
Það getur ekki skipt nokkum mann máli nema
mig sjálfan, hvað mér finnst. En fyrst þér
spyrjið, þá játa ég það, að ég er oft á báðum
áttum í þessum efnum... En hversu mikið, sem
trúarhugmyndir tnínar hafa sveiflast, hefi ég
aldrei verið guðleysingi í þeim skilningi að neita
tilveru Guðs. Ég hugsa mér helst, og því meir
sem ég verð eldri, að efasemdatrú væri réttasta
lýsingin á trúarlífi mínu. (Chancellor 1981, bls.
185; þýðing Steindórs Steindórssonar.)
Darwin gekk að eiga frænku sína Emmu
Wedgwood árið 1839. í farsælu hjónabandi
ól hún bónda sínum tíu börn og komust sjö á
legg. Hann fór fljótlega að kenna sjúkleika
sem hrjáði hann til æviloka. Hraustmennið
sem stundaði íþróttir í skóla og stóð fyrir
erfiðum rannsóknaferðum á heimsreisunni
varð sjúklingur sem á stundum gat lítið sem
ekkert unnið og var háður umhyggju konu
sinnar. Darwin dró sig út úr skarkala
heimsins og settist 1842 að á sveitasetri í
Kent þar sem hann helgaði sig ritstörfum.
Hann lést 19. apríl 1882 og var jarðsettur í
Westminsterkirkju í Lundúnum innan um
konunga og annað stórmenni Bretaveldis.
Margir hafa velt fyrir sér veikindum
Darwins. Læknar fundu enga skýringu á
þeim meðan hann lifði. Síðar skýrðu sál-
greinendur þau sem afleiðingu af ómeðvit-
uðu og bældu hatri í garð ráðríks föður,
ellegar ödípusarduld vegna þess að Darwin
hefði með þróunarkenningu sinni gengið af
föður okkar allra á himnum dauðum.
Öllu jarðbundnari læknar hafa bent á að öll
einkenni sjúkdómsins - meltingartruflanir,
vanlíðan, svefnleysi og að lokum hjarta-
bilun er dró Darwin til dauða - koma heim og
saman við einkenni chagassýki, sem orsak-
47