Náttúrufræðingurinn - 1999, Qupperneq 53
JAKOB JAKOBSSON
Árni Friðriksson
FISKIFRÆÐINGUR
ALDARMINNING
„Allt er á hverfanda hveli í tilverunni, ekkert stendur kyrrt eitt einasta
augnablik. Það, sem byggt er í dag, fellur á morgun, en upp úr rústum þess
fallna rís aftur ný bygging, ef til vill stærri og veglegri en hin, sem hrundi.
Einstaklingarnir fœðast og vaxa, njóta fjörs og gleði, standa um hríð í blóma
lífsins, en falla þó í valinn að lokum. En oft láta þeir þó eftir sig „orðstír, sem
deyr aldregi“. Sömu kjörum og einstaklingarnir verða einnig ríki og
þjóðfélög mannheimsins að hlíta. Hvert heimsveldið eftir annað fœðist, þróast,
blómgast, eldist og deyr. Þannig er líf mannkynsins, en þannig er einnig líf
dýra og jurta. Eins og einstaklingnum er skapaður aldur, þannig er því einnig
varið með tegundina, sem einstaklingurinn telst til. Hvort sem við tökum
tegund eins og t.d. brennisóleyjuna, gulstörina, hestinn, svaninn eða manninn,
um allt er það sama að segja, öllu er skapaður aldur. Sá tími var til, er engin
þeirra tegunda, sem nú lifa, hvorki meðal jurta né dýra, hafði „litið Ijós
dagsins “, og sá tími mun koma, er engin þeirra tegunda, sem nú eru uppi,
dregur lífsanda lengur. Aðrar tegundir, sem leysa okkur af hólmi, og halda
velli að oss liðnum, munu þá finna leifar af líkum vorum í jarðlögunum, alveg
eins og vér nú gröfum beinagrindur liðinna tegunda upp úr skauti
jarðarinnar. “
■ FRÆÐAFUNN
Svo ritaði Árni Friðriksson í formála að bók
sem bókadeild Menningarsjóðs gaf út
sumarið 1932 og nefnist Aldahvörf í
dýraríkinu en uppistaðan í henni eru 11
fyrirlestrar sem hann flutti í Ríkisútvarpinu
veturinn 1931-1932. Árni var þá nýkominn
heim frá námi, 33 ára að aldri, og vildi allt til
vinna að fræða íslenska alþýðu um allt það
nýjasta í náttúruvísindum og þá sérstaklega
í þeim þáttum fræðanna sem honum voru
kunnugastir, þ.e.a.s. í dýrafræði og grasa-
fræði. Formálanum að bókinni lýkur Árni
með eftirfarandi orðum. „Mér er það brenn-
andi áhugamál að íslensk alþýða fái að njóta
fræðslu um þá hluti, sem stöðugt grípa
dýpra og dýpra inn í hugsanalíf allra siðaðra
þjóða, en þar til má fyrst og fremst nefna
náttúruvxsindin. ísland á nú marga prýði-
Náttúrufræðingurinn 69 (1), bls. 51-60, 1999.
51