Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1999, Qupperneq 57

Náttúrufræðingurinn - 1999, Qupperneq 57
2. mynd. Hugmyndir um síldargöngur við ísland áður en Árni Friðriksson setti fram nýjar kenningar um göngur síldarinnar (Johansen 1927). voru einkum stundaðar síldveiðar að vetrarlagi, þegar síldin gekk á hrygningar- stöðvarnar við vesturströnd Noregs. Þessar veiðar höfðu Norðmenn stundað frá aldaöðli eins og kunnugt er. Miðað við að hin gríðarmikla síldarmergð sem sást við Norðurland á sumrin kæmi öll suður fyrir land að vetrarlagi fannst Arna tilvalið að vinna að því að síldveiðar yrðu stundaðar hér árið um kring, þ.e.a.s. fyrir Norðurlandi að sumarlagi en fyrir Suðurlandi að vetrar- lagi. Þegar Árni kynnti þessar hugmyndir fyrir forráðamönnum þjóðarinnar var þeim vel tekið. Hann fékk yfirráð yfir varðskipinu Þór, sem reyndar var upphaflega gamall togari, hann fékk fé til að kaupa síldarvörpur og önnur áhöld til síldveiða og að síðustu fékk hann einnig fé til að kaupa bergmálsmæli sem settur var í varðskipið til þess að unnt væri að finna síldartorfur. Að vísu var þetta ákaflega frumstæður mælir en því fremur var treyst á síldarvörpuna sem kastað var og dregin víðsvegar fyrir Suðurlandi í fyrsta skipti á útmánuðum 1935. Um niður- stöðurnar fjallar Árni í grein sem hann ritaði í 6. tölublað tímaritsins Ægis sumarið 1935 en þar segir m.a.: „Við toguðum dag og nótt á öllum botni þar sem vörpunni varð beitt en allt kom fyrir ekki. Það sem við ætluðum að finna, hina hrygnandi vorgotssíld, fundum við hvergi hversu vel sem leitað var. Að vísu urðum við varir við síld en það var allt millisíld eða þá sumargotssild en vorgots- síld engin. Af öðrum fiski fengum við nóg, ineira en við óskuðum eftir. Það kom t.d. fyrir að við fengum þrískiptan poka af þorski og svo var botnvarpan veiðin að hún tók þúsundir af spærlingi svo nærri má geta hvort hún hefði ekki getað tekið síld ef einhver hefði verið fyrir.“ Síðan segir Árni: „Hvar hrygnir síldin? Ég er ekki í vafa um það að skoðanir þær sem byggðar hafa verið á rannsóknum þessarar aldar um lifnaðar- hætti síldarinnar, þó einkum eftir rann- sóknuin Bjarna og Schmiths [Jóhannesar SchmithJ, eru réttar. Það er áreiðanlega til síld sem hagar sér eins og við höfum haldið að öll vorgotssíldin gerði. Eitthvað af þeirri síld sem veiðist fyrir norðan á sumrin hrygnir fyrir sunnan á vetrum eins og augljóst verður af því sem fyrr er sagt. Eftir 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.