Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 55

Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 55
orðið 0,5—1,0 mm eða jafnvel nokkuð meira eru vikurkennd og full smá- blöðrum. Sum líkjast því að vera límd saman úr fjölda örmjórra þráða og sýna veikt tvíbrot, sem stafar af spennu í efninu. Neðst í laginu eru kornin nokkuð stærri og efst í því ber talsvert á örmjóum glerþráðum, nornaþráðum, sem ég hef ekki fund- ið neðst í því. Sennilegt virðist mér að brúnleitu glerkornin og þau lit- lausu séu ekki frá sama eldvarpi, þó ekkert kunni ég ákveðið um það að segja. Ljósbrot litlausa glersins reynd ist Nd 1.4981—1.4985 við eins ná- kvæma mælingu og mér var framast unnt. Þetta passar vel við niðurstöður Jens Tómassonar (1967) fyrir land- námslagið, en það er talsvert frá- brugðið flestum Heklu-lögunum. Sam- kvæmt Moorhouse (1959) þýðir þetta um 73—74% Si02. Svipuð niðurstaða fæst út frá eðlisþyngdarákvörðunum. Einstaka feldspatbrot koma fram í öskunni en annað kristallað efni fann ég þar ekki. Ekki held ég að vafi geti leikið á því að þetta sé landnámslag- ið. Sýnir það bæði afstaða þess í snið- inu og samsetning öskunnar. Þegar grafið er dýpra og aðeins inn undir hraunkantinn kemur í ljós að ösku- lagið hverfur inn undir hraunið, sem j>ví er yngra. Hraunið liggur svo þétt ofan á öskulaginu að enginn vottur af jarðvegsmyndun verður þar á milli greindur. Er af Jrví ljóst að hraunið liefur runnið tiltölulega skömmu eftir að askan féll. Hún hefur fallið á gró- ið land, sem verið liefur mýrarbolli eins og er enn í dag og gróður að heita má eins. Stóra svarta öskulagið frá Kötlu 1485 liggur hins vegar ofan á hrauninu. Gróðurfar virðist ekki hafa tekið neinum verulegum breytingum á þess- um stað allt frá því að hann náði fyrst fótfestu á Leitahrauni sem rann fyrir um 4600 árum (Jón Jónsson 1971) til J>ess að Kötluaskan féll, en ofan við hana kemur J^urrlendisjarð- vegur (sbr. snið). Um 26 cm neðan við landnámslagið er Jrnnnt ljóst ösku- lag, sem vera mun H-3 (Sigurður Þór- arinsson 1967). Það er nú kunnugt að landnámslagið varð til rétt um 900 e. Kr. (Sigurður Þórarinsson op. cit., Jón Jónsson 1978). Ég sé Jíví ekkert Jrví til fyrirstöðu að hér sé fundið hraun það, sem getið er um í Kristnisögu, hið raunveru- lega Kristnitökuhraun, og heimildin um Jretta gos, hið fyrsta sem skráð er í sögu Jjjóðarinnar, Jjví í meginatrið- um rétt. Því má aðeins bæta við að sé Lamba- fellshraun eitthvað að ráði yngra })á er það hið eina sanna Kristnitöku- hraun og, svo haldið sé við sögnina, })á er nær sanni að það liafi stefnt á bæ Þórodds goða heldur en Svína- hraun. Reynt verður síðar að fá svar við þessu og óneitanlega er það skcmmtilegt að hægt er að færa sönn- ur á að sögnin er ekki tilbúningur. HEIMILDIR Jónsson, Jón, 1971. Hraun í nágrenni Reykjavíkur. I. Leitahraun. Náttúru- fr. 41, bls. 49-63. — 1975. Nokkrar aldursákvarðanir. Náttúrufr. 45, bls. 27—30. — 1977. Reykjafellsgígir og skarðmýrar- hraun á Hellisheiði. Náttúrufr. 47, bls. 17-26. — 1978. Jarðfræðikort af Reykjanes- skaga. Orkustofnun OE JHD 7831, Apríl 1978. 49 4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.