Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 72
2. mynd. Þrjár mælingar úr botnsjá, sem gerðar voru á samsíða línum í Faxaflóa
1975. Hver útskrift sýnir botn hægra og vinstra megin við siglingalínu og saman
rnynda mælingarnar heildarmynd af botninum. Tölusettu þverstrikin eru sett á stöð-
um Jrar sem nákvæmar staðarákvarðanir voru gerðar. Langstrikin eru jafnfjarlægðar-
línur með 25 metra millibili. Lerígri hlið myndarinnar jafngildir Jtví um 1500 metrum
af hafsbotni. En skemmri hliðin jafngildir í Jtessu tilviki um 3000 metrum. Myndin
sýnir malarbotn (dökkt) með flekkjum af sandi (ljóst). Neðsti hluti myndarinnar til
hægri sýnir ósléttan botn úr föstu bergi. (Ljósnt. H. Þ.) — Sand patches on gravel
shown in three parallel sonographs from Faxaflói, SW-Iceland. Rock oatcrop on
lower right.
og gefur þvi möguleika á að kort-
leggja hafsbotn mjög nákvæmlega.
Slík kortlagning byggist á því að unnt
sé að sigla eftir samsíða línum sem
eru ekki fjær hver annarri en svo, að
samfelld mynd náist af botninum.
Staðsetningartæki mælingaskips þurfa
því að vera mjög nákvæm og áreiðan-
leg. Tilraun til kortlagningar af þessu
tagi var gerð í Faxaflóa sumarið 1975
í samvinnu við Sjómælingar íslands á
sjómælingabátnum Tý. Þetta sumar
höfðu sjómælingamenn afnot af mjög
nákvæmum staðsetningartækjum, sem
gerðu það að verkum, að unnt var að
ná 100% yfirferð yfir mælingasvæðið.
Á 2. mynd er sýnd útskrift úr botn-
sjá, þar sem mælingar af þremur sigl-
ingalínum eru lagðar saman og mynda
eins konar „loftmynd“ af hafsbotni.