Náttúrufræðingurinn - 1979, Page 73
Þessi kortlagníng í Faxaflóa tókst veí
og náði yfir 500 ferkílómetra svæði.
Niðurstöður verða birtar annars stað-
ar og því ekki ræddar nánar hér.
í kjölfar þessarar tilraunar hefur
síðar verið reynt að kortleggja önnur
svæði á íslenska landgrunninu, en þær
tilraunir hafa tekist verr en mæling-
arnar í Faxaflóa. Ástæðan er sú að
þær hafa verið gerðar á hafrannsókna-
skipum, sem ekki eru búin nægilega
nákvæmum siglingatækjum.
b. Gróf kunnun á afmörkuðum svœð-
um. Á meðan ekki er unnt að kort-
leggja svæði nákvæmlega vegna skorts
á staðsetningartækjum, er hægt að
nýta botnsjá til þess að gefa grófa
rnynd af botngerð á tilteknum haf-
svæðurn. Þá er siglt vítt og breitt um
svæðin og útskrift botnsjárinnar not-
uð til þess að fá höfuðdrætti í mynd
af gerð botnsins. Slíkt hefur verið gert,
t. d. á landgrunninu undan suðaust-
urlandi, en þar hafa verið gerðar
mælingar í nokkrum leiðöngrum
rannsóknaskipanna Árna Friðriksson-
ar og Hafþórs (eldra). Með því að
taka fjölda sýna af hafsbotni hefur
verið unnt að fylla talsvert upp í þá
mynd sem botnsjáin gefur af gerð
hafsbotnsins á Jtessu svæði.
c. Snucrri verkefni. Þar sem botnsjáin
3. mynd. Neðansjávarleiðsla milli Heimaeyjar og Jands (ör) liggur yfir klappir á hafs-
botni, en hverfur í setið (möl og sand) báðum megin við fasta bergið. Stórir gárar
í setinu á milli klettanna neðan við miðja mynd til vinstri og benda til þess að setið
hreyfist, a. m. k. annað veifið. (Ljósm. H. Þ.) — Submarine pipeline exposed on rocky
bottom (arroxu) but disappears in sediment on both sides. Record taken near Heimaey,
S-Iceland.
67