Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 76
gott starf, en þeir láta nú af störfum. Eiríkur
hefur verið endurskoðandi i 20 ár en Magnús
í 12 ár.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur fyrir árið 1979 var haldinn
laugardaginn 23. febrúar 1980ístofu nr. 201
1 Árnagarði við Suðurgötu í Reykjavík. 23
félagar sóttu fundinn. Fundarstjóri var kos-
inn Sveinn Jakobsson, jarðfræðingur, og
fundarritari Tómas Einarsson, kennari.
Formaður minntist látinna félaga og flutti
skýrslu stjórnar um störf félagsins á árinu.
Slðan las gjaldkeri upp reikninga félagsins
og voru þeir samþykktir.
Nokkrar umræður urðu um skýrslu
stjórnarinnar og starfsemi félagsins. Agúst
H. Bjarnason ræddi um að stjórnin leitaði
ekki nægilega til hins almenna félaga eða
örvaði til þátttöku í starfi félagsins, fræð-
ingar af ýmsu tagi í stjórninni réðu þar of
mikið ferðinni; þá taldi hann stjórnarkjör of
bundið við þá menn sem fráfarandi stjórn
styngi upp á. Einnig taldi hann stjórnina
eiga sök á dræmri fundarsókn.
Loks átaldi Ágúst stjórnina fyrir seina-
gang í undirbúningi útgáfu Flóru Islands,
þar hefði átt að fara öðru vísi að á flestum
sviðum. Sigurður H. Pétursson og Einar B.
Pálsson mótmæltu ýmsum fullyrðingum
Ágústs, og ræddu auk þess nokkur fleiri
atriði í starfsemi félagsins, m. a. útgáfu
Náttúrufræðingsins og var það álit þeirra og
fleiri sem tóku til máls, að tvímælalaust væri
æskilegra að gefa út fjögur einföld hefti ár-
lega en tvö tvöföld og stærri hefti; því oftar
sem ritið kæmi því betra, jafnvel þótt minna
kæmi í einu. Þá skýrði Kjartan Thors, rit-
stjóri Náttúrufræðingsins, frá ýmsu sem
fyrirhugað er á næstunni varðandi útgáfu
ritsins, og hvatti síðan til þátttöku í þeirri
starfsemi sem fram fer á ári trésins. For-
maður svaraði að lokum nokkrum atriðum
sem fram komu 1 máli fundarmanna.
Ur stjórn áttu að ganga Eyþór Einarsson,
formaður, Leifur Simonarson, varafor-
maður en hvorugur gaf kost á sér til endur-
kjörs, og Ingólfur Einarsson, gjaldkeri.
Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur, var
kosinn formaður, Ingólfur Einarsson var
endurkjörinn og Erling Ólafsson, skordýra-
fræðingur, kosinn í stað Leifs, en stjórnin
skiptir svo sjálf með sér verkum i samræmi
við félagslög. Ur varastjórn áttu að ganga
Bergþór Jóhannsson og Einar B. Pálsson og
voru þeir báðir endurkjörnir. Endurskoð-
endur voru kosnir Magnús Árnason, múrari,
og Tómas Helgason, húsvörður, því þeir
Eiríkur Einarssort og Magnús Sveinsson sem
verið hafa endurskoðendur félagsins um
áraraðir gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.
Gestur Guðfinnsson var endurkjörinn vara-
endurskoðandi.
Stjórnin flutti tillögu um hækkun félags-
gjalds í kr. 5.000,00 og var hún samþykkt.
Loks þakkaði Einar B. Pálsson fráfarandi
stjórnarmönnum störf þeirra í þágu félags-
ins, og fráfarandi formaður þakkaði ágætt
samstarf við stjórnina og aðra félaga.
FRÆÐSLUSAMKOMUR
Á árinu voru haldnar sex fræðslusam-
komur að venju, allar í stofu nr. 201 í Árna-
garði við Suðurgötu í Reykjavík. Á öllum
samkomunum hafa verið haldnir fyrirlestrar
um ýmis náttúrufræðileg efni. Urðu um-
ræður oft hinar líflegustu og fyrirlesarar
þurftu að svara mörgum fyrirspurnum.
Aðsókn að fyrirlestrum var misjöfn eins og
ætið hefur verið, en jafnbetri en hún hefur
verið um langt skeið og fjölmennustu sam-
komuna sóttu um 120 manns. Samkomu-
gestir urðu alls um 350 eða 58 að meðaltali.
Fyrirlesarar og efni fyrirlestra var sem hér segir:
29. janúar:
Fyrirlesari: Sólmundur Einarsson, sjávarlif-
fræðingur. Efni: Islenskir selastofnar.
26. febrúar:
Fyrirlesari: Trausti Jónsson, veðurfræð-
ingur. Efni: Hitafar hafissmánaða á Islandi.
26. mars:
Fyrirlesari: Sigmundur Guðbjarnarson, líf-
efnafræðingur. Efni: Fituefni hjartavöðva
og skyndilegur hjartadauði.
30. apríl:
Fyrirlesari: Jón Eiriksson, jarðfræðingur.
Efni: Breiðuvikurlögin á Tjörnesi.
70