Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 78
um jarðhita á Islandi. Rætt var um að birta
afmælisgrein um Náttúrufræðinginn í 50.
árgangi hans, en ofan á varð að hún birtist i
1. hefti 51. árgangs, þ. e. þegar afmælisár-
gangnum er lokið, á árinu 1981, en Náttúru-
fræðingurinn byrjaði að koma út árið 1931.
Sigurður H. Pétursson, gerlafræðingur, sem
hefur ritstýrt Náttúrufræðingnum lengur en
nokkur annar eða 10 ár, frá 1956— 1965, og
var þar að auki í stjórn félagsins næstu 10
árin á undan og 5 síðari árin formaður þess,
hann hefur góðfúslega tekið að sér að skrifa
þessa afmælisgrein.
Kjartan Thors hyggst láta af ritstjórn
Náttúrufræðingsins siðar á þessu ári og
kemur því í hlut nýrrar stjórnar að ráða
nýjan ritstjóra.
Af Félagsbréfi komu út fjögur hefti cins og
áður og árgangurinn var sá fjórði i röðinni.
Sigurður Friðfinnsson fjölritaði Félagsbréf
og Eyþór Einarsson ritstýrði jrví.
FJÁRHAGUR
F'élaginu voru veittar kr. 250.000.— á
fjárlögum til starfsemi sinnar á árinu, en jrað
er 50 þús. kr. hærri fjárhæð en árið áður eða
25% hækkun, og hcldur því ekki i við verð-
bólguna, en jró ber að jiakka Alþingi styrk-
inn, ýmsir aðrir hafa farið enn verr út úr því
en við.
Sem fyrr eru það j)ó árgjöld félaga sem
standa undir útgáfustarfseminni, og
fræðslusamkomur og fræðsluferðirnar
standa undir sér sjálfar, [rar sem öll vinna
fyrirlesara, leiðsögumanna og stjórnar við
jtær er gefin. Árgjöldin hafa innheimst með
besta móti, enda hefur jrrautseigustu skuld-
urunum nú verið vísað úr félaginu, og
nokkrar tekjur urðu af sölu sérprentana. Við
jnirfum því ekki að kvarta, fjárhagurinn er
sæmilegur, kannski vegna þess að við höfum
reynt að halda í við verðbólguna með þvi að
hækka árgjöld jafnhliða henni. Síðasta ár
var gjaldið 3500 krónur, sem er ekki hátt
verð á jafn merkri rúmlega tvö hundruð
síðna bók og árgangur Náttúrufræðingsins
er. Til að halda þessu striki jtarf enn að
hækka árgjaldið núna.
FLÓRA ISLANDS
Útgáfunefndin hefur haldið nokkra fundi
og rætt ýmis atriði varðandi útgáfuna.
Lyklar nokkurra stórra ætta hafa verið
endurskoðaðir, ennfremur lýsingar sömu
ætta, auk lykla og lýsinga ættkvísla og
nokkurra tegunda þeirra. Með jjví móti er
fengin nokkurs konar forskrift jjeirra breyt-
inga sem gera jrarf á öðrunt lyklum og lýs-
ingum.
Verkið hefur gengið hægar en áætlað var i
fyrstu, sökum annrikis nefndarmanna við
ýmis önnur störf, enda má segja að fyrri
áætlanir hafi verið gerðar af bjartsýni og
bókin verði um jrað bil ári á eftir jteim. Eftir
sem áður veröur lögð höfuðáhersla á að
vanda sem mest til útgáfunnar.
AÐALFUNDUR LANDVERNDAR
Félagið tók |)átt i aðalfundi Landverndar
sem haldinn var 24. nóvember. Fulltrúar
þess á fundinum voru Leifur Símonarson,
jarðfræðingur, og Kristbjörn Egilsson,
grasafræðingur.
UMSÖGN UM FRUMVARP TIL
NÝRRA LAGA UM FUGLAVEIÐAR OG
FUGLAFRIÐUN
Snemma á árinu barst félaginu ofangreint
frumvarp til umsagnar frá menntamála-
nefnd efri deildar Aljjingis, og fékk stjórnin
fuglafræðinga til að aðstoða sig við aö ganga
frá umsögninni.
72