Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 4

Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 4
klórkolefnissambönd ('l’ask Force on PCBs 1972). Þegar kom franr unr 1975, þótti ljóst, að í smjörsýnum væri magn alfa-ísómers hexaklórcýklóhexans meira en búast mætti vió vegna notkunar í landbúnaói og garðyrkju hér á landi. Lék strax grunur á, að um aðkonrna mengun væri að ræða. Voru því næst tekin lil sam- anburðar fitusýni af hreindýrum, sent cins og kunnugt er halda sig einkum í óbyggðum, og leitað að klórkolefnis- samböndum í þeim. í þessum sýnum var einungis alfa-ísómer hexaklórcýkló- hexans, svo og hexaklórbenzen og PCB-efni. Var sú ályktun dregin af þessum rannsóknum, að mengun af völdum fyrrnefndra efna væri fyrst og fremst aðkomin og hefðu efnin borist hingað mcð lofti frá öðrum löndum (Jóhannes Skaftason & Þorkell Jó- hannesson 1979b). Til að afla frekari upplýsinga um mengun þessa var ákveðið að taka til rannsóknar silunga úr nokkrum vötnum og einkum þar, sem silungur er staöbundinn. Sýnum var safnað á árunum 1977- 1979ogeru niðurstöðutölur birtar hér á eftir. 1. mynd. Kort af fslandi, er sýnir legu sex stöðuvatna og fjögurra vatnsfalla (sbr. texta). Auk þess er lega Reykjavíkur og Akureyrar sýnd. — Fig I. — Maþ of lcelandshowing the localion of six lakes and four nvers (cf. text). The capital lown Reykjavík and Akureyri are also þlotted on the maþ. 98

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.