Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 33

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 33
5. mynd. Svona hugsa menn sér árekstur tveggja rafeinda. Hlykkjóttu línurnar tákna brautir ljóseinda, sem rafeindir geta sent á milli sín á ýmsa vegu. Krafti milli tveggja öreinda er lýst með enn öðrum ögnum, sem öreindirn- ar senda á milli sín. Til dæmis skiptast rafeindir á ljóseindum. Rangt er að imynda sér árekstur tveggja öreinda sem árekstur tveggja litilla bolta. Þegar tvær rafeindir A og B nálgast, er réttara að hugsa sér atburðarásina eitthvað á Jsessa leið: 1) Rafeind A sendir frá sér ljóseind og breytir um stefnu og hraða. 2) Rafeind B gleypir ljóseindina og um leið raskast braut hennar af völdum skriðjDunga ljóseindarinnar (5. mynd). Þetta ferli getur svo endurtekist. Á leið- inni milli rafeindanna getur ljóseindin umbreyst í tvær rafeindir, sem síðan verða aftur að ljóseind. Óendanlega margir ntöguleikar eru fyrir hendi og þá veröur alla að taka með í reikninginn. Imyndum okkur, að við getum sparkað í rafeind með miklu afli. Þá öðlast rafeindin hreyfiorku, sem sam- kvæmt jöfnu Einsteins getur oröið að fleiri rafeindum. Við vitum Jdví yfirleitt ekki nákvæmlega liværsu ntargar ör- eindir eru fyrir hendi við gefnar að- stæður. KVARKAR Lengi héldu menn, að atóm væru smæstu agnir efnisins, en snemma á öldinni kom í ljós, að atóm eru gerð úr rafeindum, er sveima í kring um lítinn og Jxmgan kjarna. Kjarninn inniheldur tvenns konar agnir, er nefnast nifteindir og róteindir (6. mynd). Á allrasíðustu árum hefur sú tilgáta þótt liklegust, að nifteindir og róteindir séu gerðar úr enn smærri ögnum, raunverulegum öreind- unt, sem hlotið hafa heitið kvarkar. Eitt helsta verkefni skammtasviðsfræðinnar um Jsessar mundir er að útskýra hegðun kvarkanna. Þeir hafa þá einstöku nátt- úru að vera ætíð saman tveir eða fleiri í hóp. Ókleift hefur reynst að einangra 127

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.