Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 18

Náttúrufræðingurinn - 1981, Qupperneq 18
0 til 28 á m2, og iífmassinn var i báðum rannsóknunum frá 0 til um 20 g/m2. Erfitt er að skýra hvers vegna engir ánamaðkar finnast í sumum túnum. Það er mjög fágætt erlendis að i ræktarlandi finnist engir ánamaðkar (Cíuild 1951, Svendsen 1957), nema þá þeir hafi drepist vegna mengunar eða ofnotkunar varnarlyfja (Edwards og Eofty 1977). Um slikt er ekki að ræða hér á landi, aðeins notkun búfjáráburð- ar og tilbúins áburðar, svo og umferð véla við nytjun. Hugsanlegt er að ekki hafi tekist að ná ánamöðkum úr mýr- inni i rannsókninni, en stundum var mýrajarðvegurinn mjög jturr og bleytt- ist illa af formalínupplausninni, sem þá vildi renna út fyrir rammann. Það er þó skoöun höfunda jtessarar ritgerðar að raunverulega hafi engir ánamaðkar verið i Miðmýrinni, enda staðfesta niðurstöður Bengtson o. fl. (1975) það að svipaö sé ástatt um fleiri tún á Is- landi. Á það má benda að uppskcra af tún- unum annars vegar (tafla III) og fjöldi og magn ánamaðka hins vegar (tafla IV) fylgjast að. Virðist því mega full- yrða að í þessari rannsókn fari túngæði eða þrif túngrasa og þrif ánamaðka saman. Hvorki mældir efna- og eðlis- eiginleikar jarðvegsins (tafla I) né gróðurfarið (tafla II) viröast gefa neina einhlýta skýringu á mismuni milli tún- anna i uppskeru og ánamaðkafjölda. Þó er rúmþyngd jarðvegs minnst og vatns- hlutdeild einna mest t mýrarjörðinni, en það bendir til minna loftrýmis og minni hlutdeildar af stórum holum í mýrinni. Þetta gæti hamlað þrifum bæði tún- grasa og ánamaðka, eu vitað er að bæði grös og ánamaðkar gera ákveðnar kröf- ur til loftrýmis í jarðvegi, og bæði grös og ánamaðkar auka loftrými jarðvegs með tilvist sinni. Enn fremur gætu önn- ur efnasambönd cn þau, sem venjulega eru mæld til mats á búskaparhæfni túna, og sýnd eru í töflu I, verið ána- möðkum til anta, en vitaö er að í mýrum er mikið magn ýmissa járn-, mangan- og álsambanda. ÞAKKARORÐ Höfundar þakka Helga Hallgríms- syni, Náttúrugripasafninu, Akureyri, fyrir afnot af safninu við greiningu ánamaðkanna og Jörgen Stenersen, Statens Plantevern, Zoologisk Avdcling, Noregi, fyrir greiningu á nokkrum ein- tökum ánamaðka. YFIRLIT Ánamöðkum var safnað þrisvar sinn- um úr þremur túnum og einum garð- bletti á Möðruvöllum í Hörgárdal. Eitt túnanna var á mýrarjarðvegi, annað á sendnum jarðvegi og það þriðja á móa- jarðvegi, en öll voru túnin gamalrækt- uð, vel ræst með blendingsgróöri. I garðblettinum fundust 6 tegundir kyn- þroska ánamaðka, í móatúninu 5 teg- undir, í sandtúninu 2 tegundir en eng- inn ánamaðkur fannst 1 mýrartúninu. Heyuppskera af túnunum minnkaði samhliða fjölda ánamaðka, en engin einhlýt skýring fannst á því hvers vegna bæði grös og ánamaðkar dafna illa eða jafnvel ekki í mýrartúninu. Algengustu ánamaðkategundir í túnum eru Lumbricus terrestris L. og Alloloboþhora caliginosa (Sav.), en auk þeirra fundust L. rubellus Hoffm., A. rosea (Sav.) og A. 112

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.