Náttúrufræðingurinn - 1981, Page 44
sprungnum blómknöppum 1. ágúst.
Einhver gróskumesti bletturinn á svæð-
inu er blómlendisgilbrekka utarlega
neðst á girta svæðinu. Þar skarta mjað-
jurt, fjalladalafífill, skarifífill, íslandsfíf-
ill o. fl. undafíflar, möðrur, blákolla,
burnirót, brennisóley, hrútaberjalyng
o. fl. tegundir blómum sínum. Búið var
að slá og hreinlegt á svæðinu og gallar á
girðingu höfðu verið lagfærðir. Fáeinar
kindur sjást stöku sinnum innan girð-
ingar og munu þær helst komast inn um
lítið hlið, sem cngin botngrind er í.
VI. GENGIfi UM GEYSISSV,llfilfi
6.JÚLÍ 1980
Þrifalega umgengið að sjá. Loðvíði-
runnarnir hækka og ber stöðugt meira á
þeim. Birkibeltin eru farin að veita
verulegt skjól og vel tognar úr alaska-
öspunum. Ryðlitu leirflögin i brekkun-
um gróa mjög hægt, og sums staðar er
varla sjáanlegur munur á þeim síðan
1960. Þistillinn breiðist talsvert út á
hveraleirskellum og grýttum ás. Verra
er hitt að hann er kominn i birkilundinn
og út á graslendi við hann. Þvrfti að slá
hann þar eða helst uppræta. Þistillinn
sáir sér, en breiðist mest út með víð-
skriðulum neðanjarðarrenglum. Auð-
sjáanlega mikill munur á gróðri innan
girðingar og utan. Allt miklu grósku-
legra innan girðingar.
VII. SLÆÐINGAR
Nokkrar tegundir hafa slæðst inn á
svæðið eftir að Sigurður Greipsson reisti
hús sitt í jaðri þess og umferð jókst, m. a.
í sambandi við ræktun. Grasfræi mun
hafa verið sáð og borið er á bletti innan
girðingar og þeir slegnir. Af ílendum
138