Náttúrufræðingurinn - 1981, Síða 47
Jóhannes Björnsson:
• •
Ornefnaflutningur
og örnefnasmíð
Árið 1977 skrifaði ég smágrein i
Náttúrufræðinginn til að leiðrétta ör-
nefni á uppdrætti af vestanverðri
strandlengju Tjörness í bókinni: „A
stratigraphical survey of the pliocene
deposits at Tjörnes in N-Iceland,“ eftir
Guðmund G. Bárðarson jarðfræðing.
Siðar hef ég orðið þess vís, að uppi í
Tjörnesfjallgarðinum eru einnig nokkur
örnefni, sem hlotið hafa slæma meðferð
ýmissa manna, en höfuðsökina má rekja
til íslandsuppdráttar herforingjaráðsins
danska.
Tjörneslögin hafa löngum haft mikið
aðdráttarafl á jarðfræðinga. Þeir eru því
tíðir gestir hér og ýmsir hafa skrifað um
Tjörneslögin, — allt frá fjöru til fjalls.
En ]sað verður ekki gert nema með
ntikilli notkun örnefna. Því er nauðsyn-
legt að þau fái að halda sínu forna heiti
og séu ekki færð úr stað, hvorttveggja
getur leitt menn á villigötur.
Hafa ber einnig í huga, að sum ör-
nefni varða veg til könnunar á gróður-
fari landsins á liðnum öldum og til
rannsóknar á tungu þjóðarinnar.
Ég læt þennan formála nægja, legg til
heiðar og nem fyrst staðar norðan Búr-
fells í Búrfetlsskarðaclal. Hann er nefndur
Búrfellsskarðsdalur í bók Jakobs Lín-
dals: ,,Með huga og hamri.“ Fleirtölu-
myndin, sem heimamenn nota, er mýkri
í munni og jafnframt réttnefni, þvi
skörðin upp úr dalnum eru tvö, annað
Dimmidalur, sem gengur til suðurs, hitt
i austur.
Úr Búrfellsskarðadal fellur lækur eða
lítil á niður í Köldukvísl. Á korti her-
foringjaráðsins er hún nefnd Þverá.
Tjörnesingar kalla hana Búrfellsá. Það
nafn ber hún líka i tveimur nálega
hundrað ára gömlum landamerkja-
skrám aðliggjandi jarða. Á korti herfor-
ingjaráðsins, — norðvestur af Búrfelli,
— stendur Grasafjöll. Við heimamenn
höfum þetta örnefni ætíð í eintölu og
nefnum Grasafjall. Nafnið er eflaust
dregið af góðu grasalandi þarna fyrr á
öldum meðan landið var algróið, og
skammt suðaustur af fjallinu er enn
besta grasaland sveitarinnar. Þó breyt-
ing þessa örnefnis sé slæm, er hitt þó
hálfu verra, að Danir hafa flutt það
drjúgan spöl austur og upp á hálendið
úr 425 m hæð, sem er á kolli fjallsins, í
500—600 m yfir sjó og á mestu gróður-
leysu Tjörnesfjallgarðs.
Og jarðsögulega er þessi flutningur
enn þá meinlegri. Samkvæmt korti í
Jarðfræði Þorleifs Einarssonar af jarð-
Náttúrufræðingurinn, 51 (3), bls. 141 — 142, 1981
141