Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 15

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 15
Jóhann Sigurjónsson: Handskutull finnst í Búrhval (Physeter macrocephalus) veiddum við ísland INNGANGUR Búrhvalsveiðar hafa verið stundað- ar víða í Norður-Atlantshafi á 20. öld. Á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina hafa búrhvalir verið veiddir í töluverð- um mæli með núverandi veiðiaðferð- um beggja megin Atlantsála (Mitchell 1974, Jonsgárd 1974, 1977). Ennfrem- ur hafa umfangsmiklar frumstæðar veiðar verið stundaðar á árabátum við strendur Azoreyja og Madeira (Knud- sen 1946, Clarke 1954, 1981) og fáein dýr munu hafa verið veidd á sunnan- verðu Karabíska hafinu á undanförn- um áratugum (Caldwell og Caldwell 1971, Caldwell o. fl. 1971, Price 1983). Útbreiðsla þessara veiða, ásamt athugunum gerðum á flutningaskipum á leið um úthafið (t.d. Brown 1958), hafa sýnt að búrhvalur fer vítt og breitt um Norður-Atlantshaf. Við strendur íslands, svo og á öðr- um kaldsjávarsvæðum Norður-Atlants- hafsins hafa aðeins veiðst stórir tarfar (Degerböl 1949, Kapel 1979, Mitchell 1974, Öynes 1957). Við Azoreyjar, Madeira og Spán hafa hins vegar veiðst bæði tarfar og kýr, en auk þess eru á þessum slóðum ung dýr af báð- um kynjum (Clarke 1956, Aguilar og Sanpera 1981). Búrhvalir í Norður- Atlantshafi virðast því fylgja svipuðu útbreiðslumynstri og greint hefur ver- ið frá í öðrum heimshöfum (t.d. Best 1979). Meginreglan er sú, að tarfar með hjarðir kúa (búrhvalur er fjöl- kvænisdýr) auk ungviðis halda sig á aðalútbreiðslusvæðinu, sem er í nám- unda við miðbaug norður á 40. breiddargráðu. Hópar tarfa (mestur hluti kynþroska) leita hins vegar langt norður á bóginn yfir hlýrri mánuðina, allt norður til Svalbarða, 77°40’N (Benjaminsen 1970). Á undanförnum árum hefur vísinda- nefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins fengist við útreikninga á fjölda búrhvala í Norður-Atlantshafi. Ein meginfor- senda stofnstærðarútreikninganna hef- ur verið sú, að aðeins einn stofn búr- hvala sé í Norður-Atlantshafi (Anon. 1981). Aðeins einu sinni hefur hval- merki endurheimst í búrhval veiddum í Norður-Atlantshafi (Mitchell 1975). Þar var um að ræða tarf, er merktur var árið 1966 út af ströndum Nova Scotia (42°12’N, 65°07’V) og veiddist sjö árum síðar við norðvesturströnd Spánar (44°10’N, 11°20’V). Sumarið 1981 fannst handskutull í búrhval veiddum vestur af íslandi, sem færir fyrstu sönnur fyrir því, að búrhvalir hér við land eigi leið um suðlægari slóðir á Norður-Atlantshafi. Verður nú nánar vikið að því. Náttúrufræðingurinn 54 (1), bls. 9—14. 1985 9

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.