Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 26
Mynd 2. Trjábolur í Selsundsvikrinum inn af Selsundi. Bolurinn er af birki, 18 cm að
sverleika. — A tree trimk engulfed in the Selsund pumice at Selsund farm. The trunk is
of birch 18 cm in diameter.
VIKURHLAUP í ÞJÓRSÁ, HVÍTÁ
OG STÓRU-LAXÁ
Merki um vikurhlaup frá Heklu
hafa fundist víðar en við Rangá.
Ástæða þess að farið var að gefa þeim
gaum voru þykk lög af ljósri, velktri
gjósku á Skeiðum og við Stóru-Laxá í
Hrunamannahreppi. Lögin féllu eng-
an veginn að þeirri mynd sem dregin
hefur verið upp af þykktardreifingu
ljósu gjóskulaganna frá Heklu (sbr.
mynd 4 og Guðrún Larsen og Sigurður
Þórarinson 1977), en afstaða þeirra til
þekktra gjóskulaga í jarðveginum
bentu eindregið til þess að þau væru
álíka gömul og gjóskulögin H3 og H4.
Sunnan Vörðufells á Skeiðum, milli
bæjanna Útverka og Fjalls, eru lágar
hólaþyrpingar, Porleifshólar. Hólarnir
standa u.þ.b. 5 m upp úr víðáttumiklu
mýrlendi, sem þekur Þjórsárhraunið á
þessum slóðum. Innri gerð hólanna
sést vel í framræsluskurði sem sker þá.
Undir meters þykku jarðvegslagi má
finna öskulag það sem kallast Land-
námslagið og féll snemma á landnáms-
öld (Guðrún Larsen 1978). Auk þess
er þar tvílitt, brúnt og svart, auðþekkj-
anlegt öskulag að finna undir land-
námslaginu og finnst það víða um
Suðurlandsundirlendi. Það er úr
Heklu komið og er nokkru yngra en
H3 (sjá nánar lýsingu á jarðvegssniði
6). Undir jarðveginum, sem þessi
öskulög eru í, er sérkennileg möl og
sandur, sem mynda aðalefni hólanna.
20