Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 53

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 53
greinagóðar, stuttar og hnitmiðaðar. Neð- anmáls í smáu letri er ýmis fróðleikur um nytjar plöntunnar. Er það mest allt gömul hjátrú um lækningamátt, en einnig er þess getið ef plantan nýtist í jurtalitun. Er gam- an að lesa þetta en sú hugsun læðist að manni hvort ekki hefði mátt bæta við fróð- leik unt líffræði plöntunnar líka. Aftan við flóruna sjálfa er stuttur kafli um grasnytjar og er hann fróðlegur svo langt sem hann nær. Þar er nær eingöngu fjallað um lækningamátt plantnanna og því lýst hvernig plöntur eru nýttar í því skyni. Ekkert er minnst á jurtalitun í þessum kafla og er það miður. Þó er líklegt að almenningur fyrr á tímum hafi frekar nýtt sér plöntur til þeirra hluta en til lækninga. í lok kaflans hefði gjarnan mátt geta ís- Ienskra heintilda um grasnytjar fyrir þá sem þyrstir í meiri fróðleik um þetta efni. í bókarlok eru ýmsar skrár og eru þar fyrirferðamestar nafnaskrár yfir þær teg- undir sem getið er um í bókinni. Ná þær yfir latnesk og íslensk plöntunöfn. Þessir nafnalistar eru nauðsynlegir öllum flórum. Þarna er einnig að finna kærkomna skrá yfir merkingu latnesku ættkvíslaheitanna og viðurnefnanna. Loks er svo listi yfir friðlýstar plöntur á íslandi. fslensk flóra með litmyndum er ákaflega falleg og vönduð bók. Sem flóra gagnast hún fyrst og fremst almenningi sem hefur áhuga á að læra að þekkja plöntur og er þá gert ráð fyrir að blómið dragi að athygli. Þeir sem þurfa að greina plöntur hvenær sumarsins sem er verða að leita á önnur mið því plöntur eru einungis í blóma stutt- an tíma. Þá tefur hin nýstárlega uppröðun á plöntunum fyrir greiningu þeirra. Enda var ekki ætlun höfundar að gera þeim til hæfis. Bókin er fyrst og fremst sniðin að þörfum áhugamanna um gróður og náttúru og mega þeir vel við una. Áslaug Helgadóttir NORDIC GLOSSARY OF HYDROLOGY Ritstjóri Iréne Johansson Útgefandi: Almqvist og Wiksell Inter- national Stokkhólmi, 1984, 224 bls. Þessi merka bók er orðasafn yfir vatna- fræðileg hugtök á norðurlandamálunum og á ensku, ásamt skýringum á hugtökunum. Bókin er þannig einskonar vatnafræðileg ensk - dönsk - finnsk - íslensk - norsk - sænsk orðabók. Vatnafræðin fjallar um vatn í sínum ýmsu myndum, áhrif þess á umhverfið og áhrif umhverfisins á vatnið. Yfir 70 sérfræðingar hafa unnið við bók- ina. þar af 13 frá íslandi. Hófst vinna þessi árið 1966 og er útgáfan kostuð af norður- landaþjóðunum, nema íslandi sem lagði einungis til vinnu við orðasafnið. Bókin hefst á formála, inngangi og köflum um ritnefnd og skammstafanir. Síðan kemur sjálft orðasafnið á bls. 15- 143, þá orðaskrá á hverju norðurlandamál- inu fyrir sig og á bls. 213-224 er síðan ensk orðaskrá sem er raðað eftir efnis- flokkum. Orðasafninu er raðað eftir ensk- um orðmyndum í starfrófsröð. Bókin er talsvert afrek út af fyrir sig og hlýtur að vera ómissandi fyrir þá sem á einhvern hátt fjalla um vatn og örlög þess. Það væri gagnlegt að hafa bókina á tölvu- diski svo unnt væri að færa inn endurbætur og leiðréttingar, einkum í grein sem þróast eins hratt og vatnafræðin. Engin bók er þó gallalaus, og því miður er þessi engin undantekning. Það virðist sem vatnafræði á sviði jarðhita eigi hér ekki innangengt, því aðeins 4 orð fann ég sem eru úr fjölskrúðugu máli jarðhita- fræða: geysir - mud spring — thermal spring - thermo-mineral spring. Ekki hef- ur þó tekist betur til en svo að leirhver (mud spring) er rangt skýrður í útskýring- um „Flow of mud brought to the surface by natural gas or artesian water pressure“. Líklega hafa fáir séð slíkt leirflæði hérlend- is, þótt ef til vill kunni slíkt að vera til í útlandinu (þetta gæti þó átt við íslenskan nútímakveðskap). Ekki er bókin alveg laus við villur og hefði mátt komast fyrir þær 47

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.