Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 54

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 54
flestar með sæmilegum prófarkalestri (t.d. „misfit stream“ = blöndunarlengd og „piezometer" = mælihola). Ýmsar skýr- ingar eru ónákvæmar, t.d. „cataract" = flúðir en ætti að vera „stór foss“. Orð eins og „bakvatn" þýðir hækkun vatns t.d. með stíflu, en í jarðhitafræðum er önnur þýðing (vatn sem hefur verið dælt undir þrýstingi niður í borholu kallast bakvatn þegar það kemur upp aftur) og verkamenn í víngarði Drottins kunna sjálfsagt þá þriðju. Mörg orðanna eru harla undarleg við fyrstu sýn t.d. „veltiúrkomuriti“, „rifinn snjór“, „núllstreymisflötur“, „eftirleguvatn“ (re- tention), „pitotpípa“ (pitot tube) og vafa- laust hefðu íslenskumenn kosið andskjól fyrir „vindhlíf“. Það er nokkuð áberandi hve duglegir við íslendingar erum við að þýða orð úr ensku, meðan hinar norður- landaþjóðirnar láta sér nægja að setja nýja endingu eða nota orðið óbreytt. Þó að mörg orðin í orðasafni þessu séu nokkuð undarleg við fyrstu sýn verður samt að taka þeim fordómalaust, finna önnur betri ef unnt er og þannig stuðla að bættum orðaforða yfir þessi fræði. í ráði er að gefa þetta orðasafn út aftur með leið- réttingum og er þeim sem þykjast vita betur bent á að koma nýjum orðum eða orðskýringum til íslensku höfundanna. Þeim sem að þessari bók stóðu þakka ég gott framtak og þarft, með von um að jarðhiti skipi veglegri sess í næstu útgáfu. Helgi Torfason. BARÁTTAN VIÐ HEIMILDIRNAR Gunnar Karlsson Ritsafn Sagnfræðistofnunar 7 Útgefandi: Sagnfræðistofnun Háskóla fslands Reykjavík, 1982, 116 bls., kilja. Ritsafn Sagnfræðistofnunar inniheldur rit sem eru ætluð sagnfræðingum og grúsk- urum til leiðbeiningar í völundarhúsi menntagyðjunnar, auk ritgerða um sagn- fræðileg efni. Ritstjóri ritraðarinnar er Jón Guðnason. Þó að kiljan Baráttan við heimildirnar sé einkum sniðin fyrir sagnfræðinema, væri með litlum breytingum unnt að nota hana sem leiðbeiningar fyrir flestar greinar hug- og raunvísinda. Raunar ættu sem flestir sem vinna við að skrifa greinar eða ritgerð- ir að glugga í þetta rit, því bæði er það vel skipulagt og fullt af húsráðum við undir- búning, ritun, hreinritun og frágang rit- gerða. Einnig er þar að finna mjög gagn- legar ábendingar fyrir þá sem þurfa að fást við texta sem á að fara í prentun. Gunnari Karlssyni hefur tekist að setja efnið saman á mjög aðgengilegan hátt og er kiljan skemmtileg aflestrar, full af dæm- um og skýringum. Að vísu eru dæmin oft þannig valin að villuráfandi lesandi gæti haldið að Gunnari væri í nöp við úrvalslið- ið á Keflavíkurflugvelli, en dæmin eru nú samt ágæt. Sagnfræðingar sækja efni sitt oft inn í rykugar hillur bóka- og skjala- safna meðan náttúrufræðingar una sér í faðmi náttúrunnar, undir blátærum himni. Er því sleppir eru efnistök hins vegar þau sömu — aðeins öguð og góð vinnutækni skilar góðum árangri, hvort sem viðkom- andi er að skrifa um skútuöldina eða skötuorma. Jarðfræðin er t.d. einskonar „sagnfræði“ eða „fornleifafræði“, enda tengjast þessar greinar oft hvor annarri á ólíklegustu stöðum. Bókinni er skipt í 21 kafla og rakið hvernig vinnu við ritgerðir (sagnfræði- nema) skal best háttað. Bókin byrjar á að fjalla um efnisval (1-2) og söfnun og skipulagningu heimilda (3), síðan eru rakt- ar aðferðir við vinnutækni, skipulagningu efnis og uppköst (4, 5, 6, 7, 8, 9, 10), byrjunarvandamál, stíl og myndefni (11, 12 og 13), frumskóg tilvitnana og heimilda (14, 15, 16 og 17), endurbætur, hreinritun og frágang (18, 19 og 20) og endar síðan kiljan á stuttu og gagnlegu yfirliti um vandamál sem varða prentun (21). Það er flestum sammerkt að auðveldara er að segja öðrum til en fara eftir slíkum leið- beiningum sjálfur, jafnvel virðist það vera sjálfri klerkastéttinni ofviða. Hins vegar er oftast gagnlegt að fara í smiðju til rithagra manna og læra af þeim og sannast þá mál- tækið „oft má gott eftir öðrum apa“. Gunnar á þakkir og heiður skilinn fyrir góða og þarfa bók. Helgi Torfason. 48

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.